Hoppa yfir valmynd
14. febrúar 2019

Doktorsnemi við Bókmennta- og listfræðastofnun Hugvísindasviðs

Doktorsnemi við Bókmennta- og listfræðastofnun Hugvísindasviðs Háskóla Íslands

Háskóli Íslands kallar eftir umsóknum um doktorsstyrk við Bókmennta- og listfræðastofnun Hugvísindasviðs tengt rannsóknaverkefninu "Tilfinningar og sjálfið á miðöldum í Norður-Evrópu" ("Emotion and the Medieval Self in Northern Europe") sem styrkt er af Rannsóknasjóði (RANNÍS). Doktorsstyrkurinn er til þriggja ára en reiknað er með að styrktímabil hefjist við undirritun samnings eða í síðasta lagi 1. september 2019.

Helstu verkefni og ábyrgð
Verkefni þetta leitast við að sýna fram á tilvist sjálfsvitundar í norður-evrópskum miðaldabókmenntum í gegnum rannsóknir á sviðsetningu tilfinninga í textum. Sviðsetningu tilfinninga í bókmenntum má skilja annars vegar sem staðlaða (félagslega og menningarlega) hegðun og hins vegar sem vitnisburð um sjálfsvitund þar sem slík sviðsetning gefur til kynna meðvitund um sjálf sem er fært um að skynja og upplifa tilfinningar. Hugtakið "sviðsetning tilfinninga" (e. emotive performativity) felur í sér táknræna, málræna eða myndræna tjáningu tilfinninga og er notað hér sem fræðileg nálgunaraðferð til að rannsaka sjálfsvitund í miðaldabókmenntum og sögu tilfinninga í Norður-Evrópu.

Verkefnið byggir á bókmenntafræðilegri og málvísindalegri nálgun í þeim tilgangi að kanna hvernig tilfinningum er miðlað í textum - bæði sem málfarslegu og sem bókmenntalegu fyrirbæri - og hvernig sviðsetning þeirra hefur áhrif á skynjun okkar og upplifun á textalegu sjálfi. Markmiðið er að rannsaka þvermenningarlega vitnisburði um tilvist sjálfsvitundar - sem miðlað er í gegnum sviðsetningu tilfinninga - og menningarbundnar og skáldlegar birtingar-myndir þess.

Verkefnið er unnið undir stjórn verkefnisstjóra, Sif Ríkharðsdóttur við Háskóla Íslands og í samstarfi við alþjóðlegt teymi fræðimanna; Carolyne Larrington við háskólann í Oxford, Frank Brandsma, við háskólann í Utrecht, Þórhall Eyþórsson við Háskóla Íslands og Massimiliano Bampi við háskólann í Feneyjum.

Doktorsnemanum er ætlað að starfa að markmiðum verkefnisins ásamt rannsóknateyminu við Háskóla Íslands. Verkefni doktorsnemans fela m.a. í sér að sækja fundi rannsóknateymisins, vinna að birtingu niðurstaðna rannsóknarinnar, flytja erindi á viðeigandi vísindaráðstefnum og fundum og aðstoða við daglegan rekstur verkefnisins. Skilyrði fyrir áframhaldandi styrkveitingu er að doktorsnemi uppfylli kröfur sem gerðar eru til doktorsefna við Háskóla Íslands meðan á námi stendur.

Hæfnikröfur
Umsækjendur skulu hafa lokið MA-prófi í almennri bókmenntafræði (með áherslu á miðaldabókmenntir), norrænum fræðum eða miðaldafræði. Æskilegt er að umsækjendur hafi þekkingu á tilfinningarannsóknum og málakunnáttu á rannsóknarsvæðinu. Gerð er krafa um góða enskukunnáttu í bæði rituðu og töluðu máli.

Doktorsneminn innritast í doktorsnám í almennri bókmenntafræði við Háskóla Íslands. Umsækjandinn sem verður fyrir valinu mun sækja, í samráði við væntanlegan leiðbeinanda, um inntöku í doktorsnám í almennri bókmenntafræði við Háskóla Íslands. Skilyrði fyrir styrkveitingu er að umsókn um doktorsnám sé samþykkt. Tekið er við umsóknum utan hefðbundins umsóknartímabils og umsækjandanum verður leiðbeint í gegnum ferlið. Umsækjendur sem eru þegar skráðir í doktorsnám við Háskóla Íslands geta sótt um styrkinn og mun styrktímabilið þá hefjast við undirritun samnings en annars er reiknað með að styrktímabil hefjist í síðast lagi 1. september 2019. Upplýsingar um hvernig á að sækja um í doktorsnám eru aðgengilegar hér: http://hugvis.hi.is/umsokn_um_doktorsnam

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Með umsókn skulu fylgja
>> Ferilskrá (CV)
>> Yfirlýsing um áform (1-2 síður) þar sem fyrri störf og áhugasvið umsækjanda eru sett í samhengi við markmið verkefnisins
>> Staðfestingar á prófgráðum (BA- og MA-gráður)
>> Tvö meðmælabréf

Öllum umsóknum verður svarað og allir umsækjendur verða látnir vita þegar ákvörðun liggur fyrir. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests. 

Við ráðningu í störf við Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun háskólans, sjá hér: https://www.hi.is/node/303261#markmid2 

Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands, sjá hér: https://www.hi.is/haskolinn/malstefna_haskola_islands

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 15.03.2019

Nánari upplýsingar veitir
Eiríkur Smári Sigurðarson - [email protected] - 525 5136

Háskóli Íslands
Hugvísindastofnun
v/Sæmundargötu
101 Reykjavík


Smelltu hér til að sækja um starfið
 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum