Hoppa yfir valmynd
2. mars 2017 Dómsmálaráðuneytið

37 sækja um embætti dómara við Landsrétt

Umsóknarfrestur um embætti dómara við Landsrétt rann út 28. febrúar og bárust 37 umsóknir um embættin. Landsréttur tekur til starfa 1. janúar 2018 á grundvelli laga um dómstóla nr. 50/2016. Auglýst voru embætti 15 dómara þann 10. febrúar síðastliðinn

Eftirtaldir sóttu um embætti:

  1. Aðalsteinn E. Jónasson, hæstaréttarlögmaður
  2. Arnfríður Einarsdóttir, héraðsdómari
  3. Ásmundur Helgason, héraðsdómari
  4. Ástráður Haraldsson, hæstaréttarlögmaður
  5. Baldvin Hafsteinsson, hæstaréttarlögmaður
  6. Björn Þorvaldsson, sviðsstjóri ákærusviðs efnahagsbrota hjá embætti héraðssaksóknara
  7. Bogi Hjálmtýsson, héraðsdómari
  8. Bryndís Helgadóttir, skrifstofustjóri í innanríkisráðuneytinu
  9. Davíð Þór Björgvinsson, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands
  10. Davor Purusic, lögfræðingur hjá Rauða krossi Íslands
  11. Eiríkur Jónsson, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands
  12. Guðjón St. Marteinsson, héraðsdómari
  13. Guðrún Sesselja Arnardóttir, hæstaréttarlögmaður
  14. Helgi Sigurðsson, hæstaréttarlögmaður
  15. Hervör Þorvaldsdóttir, héraðsdómari
  16. Hildur Briem, dómstjóri við Héraðsdóm Austurlands
  17. Höskuldur Þórhallsson, fyrrverandi alþingismaður
  18. Ingveldur Einarsdóttir, settur hæstaréttardómari
  19. Jóhannes Rúnar Jóhannsson, hæstaréttarlögmaður
  20. Jóhannes Sigurðsson, hæstaréttarlögmaður
  21. Jón Finnbjörnsson, héraðsdómari
  22. Jón Höskuldsson, héraðsdómari
  23. Jónas Jóhannsson, hæstaréttarlögmaður
  24. Karl Óttar Pétursson, hæstaréttarlögmaður
  25. Kristbjörg Stephensen, borgarlögmaður
  26. Nanna Magnadóttir, forstöðumaður úrskurðarnefndar   umhverfis- og auðlindamála
  27. Oddný Mjöll Arnardóttir, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands
  28. Ólafur Ólafsson, dómstjóri við Héraðsdóm Norðurlands eystra
  29. Ómar Stefánsson, varaformaður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála
  30. Ragnheiður Bragadóttir, héraðsdómari
  31. Ragnheiður Harðardóttir, héraðsdómari
  32. Sandra Baldvinsdóttir, héraðsdómari
  33. Sigurður Tómas Magnússon, atvinnulífsprófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík
  34. Soffía Jónsdóttir, hæstaréttarlögmaður
  35. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, hæstaréttarlögmaður
  36. Þorgeir Ingi Njálsson, dómstjóri við Héraðsdóm Reykjaness
  37. Þórdís Ingadóttir, dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík

Dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara, sem starfar á grundvelli 4. gr. a laga um dómstóla nr. 15/1998, veitir ráðherra umsögn um umsækjendur í samræmi við 2. mgr. 4. gr. a laga um dómstóla nr. 15/1998 og reglur nr. 620/2010. Ráðherra skal leggja tillögu sína um hverja skipun í embætti dómara fyrir Alþingi til samþykktar.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum