Hoppa yfir valmynd
13. júlí 2018

Framhaldsskólakennarar

Lausar stöður framhaldsskólakennara rafvirkjun og vélvirkjun – Fjölbrautaskóli Suðurlands

Stöður kennara í rafvirkjun og málmiðnum í Fjölbrautaskóla Suðurlands eru lausar til umsóknar frá og með 13. ágúst 2018. Um er að ræða 100% stöður í hvorri grein. 

Kennt er í Hamri, nýju vel búnu kennsluhúsnæði skólans. Nemendur koma að mestu af upptökusvæði skólans sem er allt Suðurland. Áætlaður nemendafjöldi í skólanum eru ríflega 800 nemendur.

Umsóknir ásamt greinargerð um menntun og fyrri störf berist á tölvupóstfangið [email protected] . Ekki þarf að sækja um á sérstökum eyðublöðum. Mikilvægt er að tilgreina meðmælendur í umsókninni. Umsækjendur þurfa að senda inn sakavottorð. 

Umsóknarfrestur er til 7. ágúst 2018.

Umsækjandi þarf að hafa meistararéttindi í rafvirkjun.og málmiðngrein. Æskilegt er að umsækjandi sé með kennsluréttindi á framhaldsskólastigi.

Leitað er eftir skipulögðum einstaklingum með brennandi áhuga á skólastarfi og löngun til að  vinna með ungu fólki. Umsækjandi þarf að hafa frumkvæði í starfi, vera skipulagður, vera fær í samskiptum og samvinnu og hafa góða þekkingu á ólíkum kennsluaðferðum. Kennslureynsla er æskileg.

Um er að ræða fjölbreytt og lifandi starf. Góð tölvukunnátta er mikilvæg. 

Laun kennara eru samkvæmt gildandi kjarasamningi KÍ og fjármálaráðherra og stofnanasamningi skólans. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Nánari upplýsingar um störfin veitir Olga Lísa Garðarsdóttir, skólameistari, [email protected].  Frekari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni www.fsu.is 


Skólameistari 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum