Hoppa yfir valmynd
21. júní 2018

Doktorsnemi við Jarðvísindadeild

Doktorsnemi við Jarðvísindadeild

Auglýst er eftir doktorsnema til að vinna með alþjóðlegu rannsóknateymi að kvörðun og rannsókn á uppruna lífmerkisins brGDGT í íslenskum jarðvegi og vatnaseti og tengingu þess við þróun hitastigs á nútíma (síðustu 11500 ára). Verkefnið byggir á söfnun sýna úr bæði jarðvegssniðum og stöðuvatnaseti með það fyrir augum að byggja upp sérstakan viðmiðunarkvarða fyrir íslenskar aðstæður. Þetta er mikilvægur þáttur í stærra verkefni sem unnið er í samvinnu við vísindamenn við Háskólann í Colorado Boulder og hefur það að markmiði að ná fram magnbundnum upplýsingum um þróun hitafars á Íslandi á nútíma.

Verkefnið hefur hlotið styrk úr Rannsóknasjóði Háskóla Íslands til þriggja ára.  Miðað er við að verkefnið hefjist 1. september 2018, eða samkvæmt nánara samkomulagi.

Doktorsverkefnið byggir á samstarfssamningi um tvíhliða doktorsgráðu frá Háskóla Íslands og University of Colorado, Boulder.  Doktorsnemandinn mun skipta námstíma sínum á milli háskólanna tveggja. Verkefnið býður upp á þverfaglegt og alþjóðlegt rannsóknaumhverfi. 
 
Nemandinn mun vinna undir leiðsögn Áslaugar Geirsdóttur og rannsóknateymis hennar auk vísindamanna við University of Colorado, Boulder (Gifford H. Miller, Julio Sepúlveda).

Menntunar- og hæfniskröfur
Meistarapróf eða samsvarandi í jarðfræði, efnafræði, líf- og jarðefnafræði eða skyldum greinum.
Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af útivinnu við jarðfræðirannsóknir.
Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af vísindastörfum á rannsóknastofu í líf- og jarðefnafræði.
Góð tölvufærni.
Góð enskukunnátta, bæði í ræðu og riti.
Góð samskiptahæfni og geta til að vinna sjálfstætt.
Umsækjandi skal uppfylla skilyrði til innritunar í doktorsnám við Verkfræði- og náttúruvísindasvið og University of Colorado.

Umsóknarferli

Vinsamlegast skilið eftirfarandi gögnum með umsókninni:
Stuttu bréfi (ekki lengra en 2 bls.) þar sem umsækjandi lýsir hvernig hann/hún uppfyllir skilyrði umsóknarinnar, áhuga fyrir verkefninu og hvað hann/hún getur lagt af mörkum til þess.
Ferilskrá
Staðfest afrit af prófskírteini (BSc og MSc) og einkunnadreifingu.
Yfirlit um birt efni umsækjanda, ef það á við.
Umsækjendum er einnig boðið að senda PDF útgáfu af meistararitgerð sinni (á hvaða tungumáli sem er), sem og aðrar britingar sem við eiga.
Nöfn, sími og tölvupóstfang tveggja meðmælenda og lýsing á tengslum þeirra við umsækjanda

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags Háskólakennara og fjármálaráðherra.

Umsóknarfrestur
Umsóknarfrestur er til og með 30. júlí  2018.

Sótt er um starfið á vefsíðu Háskóla Íslands undir laus störf

Nánari upplýsingar
Frekari upplýsinga skal leita hjá Áslaugu Geirsdóttur ([email protected])

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá lokum umsóknarfrests. 

Laun eru í samræmi við veittan styrk og skv. kjarasamningi viðeigandi stéttarfélags og fjármálaráðherra. 

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans.

Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.

Á Verkfræði- og náttúruvísindasviði starfa 360 manns við rannsóknir og kennslu á sviði verkfræði og náttúruvísinda. Starfsumhverfið er alþjóðlegt enda eykst sífellt hlutfall erlendra starfsmanna og nemenda við sviðið, en fjórðungur bæði starfsmanna og framhaldsnema eru erlendir. Nemendur Verkfræði- og náttúruvísindasviðs eru um 2300 talsins í sex deildum. Þar af eru 350 í meistaranámi og  150 í doktorsnámi.  Rannsóknarstofnanir sviðsins eru Jarðvísindastofnun og Eðlisvísindastofnun sem tilheyra báðar Raunvísindastofnun, Líf- og umhverfisvísindastofnun, Verkfræðistofnun og Stofnun Sæmundar fróða sem er þverfræðileg stofnun og heyrir undir öll fræðasvið háskólans. 
Háskóli Íslands er stærsta kennslu-, rannsókna- og vísindastofnun Íslands og er í hópi 250 bestu háskóla heims samkvæmt nýjum matslista Times Higher Education.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum