Hoppa yfir valmynd
4. apríl 2019

Framhaldsskólakennarar - Stærðfræði - Sérkennari/þroskaþjálfi

Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ auglýsir eftir framhaldsskólakennurum

Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ óskar eftir að ráða í eftirfarandi stöður framhaldsskólakennara:
Stærðfræðikennari í 100% starfshlutfall – afleysing í eitt ár
Sérkennari/þroskaþjálfi í 100% starfshlutfall

Umsækjendur þurfa að hafa viðeigandi háskólamenntun og kennsluréttindi á framhaldsskólastigi. Leitað er að kennurum sem hafa frumkvæði, eru sjálfstæðir í vinnubrögðum og hafa áhuga á að taka þátt í þróunarstarfi í kennsluháttum og uppbyggingu náms í samræmi við lög um framhaldsskóla (nr. 92/2008).

Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og Kennarasambands Íslands og skv. nánari útfærslu í stofnanasamningi skólans.

Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ kennir sig við auðlindir og umhverfi í víðum skilningi og leggur áherslu á að vera í góðum tengslum við umhverfi sitt, bæði hvað varðar listir og menningu, íþróttir og lýðheilsu og annað það sem einkennir mannlíf í Mosfellsbæ. Skólinn er framhaldsskóli með áfangasniði þar sem í boði eru stúdentsbrautir, framhaldsskólabrautir og sérnámsbraut. Helstu áherslupunktar í kennsluháttum skólans eru fjölbreyttar verkefnamiðaðar kennsluaðferðir og leiðsagnarnám.

Ráðið verður í stöðurnar frá 1. ágúst 2019.

Umsóknir með ítarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu berast Guðbjörgu Aðalbergsdóttur skólameistara í netfangið [email protected] eða Guðrúnu Guðjónsdóttur aðstoðarskólameistara í netfangið [email protected]. Einnig er hægt að senda umsóknir í pósti: Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ, Háholti 35, 270 Mosfellsbær.

Vakin er athygli umsækjenda á að samkvæmt lögum um framhaldsskóla nr. 92/2008 er ekki heimilt að ráða einstakling til starfa sem hlotið hefur dóm fyrir brot á XXII. kafla almennra hegningarlaga og því er beðið um sakavottorð áður en af ráðningu getur orðið.

Umsóknir þurfa að berast í síðasta lagi 26. apríl 2019. Umsóknir þurfa ekki að vera á sérstökum eyðublöðum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Nánari upplýsingar veitir skólameistari í netfangi [email protected] eða í síma 864-9729 og aðstoðarskólameistari í netfangi [email protected] eða í síma 845-8829. Á vef skólans www.fmos.is má einnig finna ýmsar upplýsingar um skólann.


Skólameistari

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum