Hoppa yfir valmynd
9. júní 2020

Sérfræðingur í heimilislækningum - Heilsugæsla Grafarvogs - umsóknfrestur framlengdur til 13. júlí

Sérfræðingur í heimilislækningum - Heilsugæsla Grafarvogs


Laust er til umsóknar ótímabundið starf sérfræðings í heimilislækningum við Heilsugæsluna Grafarvogi. Um er að ræða ábyrgðarmikið og krefjandi starf og spennandi vettvang fyrir lækni sem áhuga hefur á nýsköpun og framþróun í heilsugæslu. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi. 

Heilsugæslan Grafarvogi er staðsett í nýlegu húsnæði í Spönginni í Grafarvogi. Á stöðinni eru starfandi sérfræðingar í heimilislækningum ásamt sálfræðingi, hjúkrunarfræðingum, ljósmæðrum og riturum. Heilsugæslan Grafarvogi er hverfisstöð og er fyrst og fremst ætlað að veita íbúum almenna, samfellda og aðgengilega heilbrigðisþjónustu. Starfsemi heilsugæslunnar er í örri framþróun þar sem áhersla er lögð á náið samstarf fagstétta og teymisvinnu. 


Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is). 


Helstu verkefni og ábyrgð
Starfssvið heilsugæslulæknis er víðtækt og felst m.a. í almennum lækningum, heilsuvernd og síðdegisvakt. 

Heilsugæslulæknir er virkur þátttakandi í þróun og uppbyggingu heimilislækninga, sinnir kennslu starfsfólks og nema og tekur þátt í vísinda-, þróunar- og gæðastarfi. Um er að ræða spennandi vettvang fyrir lækni sem áhuga hefur á nýsköpun og framþróun í heilsugæslu.


Hæfnikröfur
- Íslenskt lækningaleyfi
- Sérfræðimenntun í heimilislækningum
- Skipulagshæfni, sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð
- Reynsla af kennslu er æskileg
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum 
- Reynsla og áhugi til samstarfs við aðrar starfsstéttir og þáttaka í teymisvinnu
- Áreiðanleiki, faglegur metnaður, jákvæðni og sveigjanleiki
- Góð almenn tölvukunnátta
- Íslenskukunnátta skilyrði 


Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og kynningarbréf þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar um læknismenntun, læknisstörf, vísinda- og rannsóknarstörf. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. 

Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Við ráðningar í störf hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins er ávallt tekið mið af jafnréttisstefnu stofnunarinnar. Umsókn getur gilt í allt að 6 mánuði.


Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 13.07.2020


Nánari upplýsingar veitir
Sveinbjörn Auðunsson - [email protected] - 513-5600



Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Grafarvogi lækningar
Spönginni 35
112 Reykjavík



Smellið hér til að sækja um starf

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum