Hoppa yfir valmynd
24. júní 2011 Matvælaráðuneytið

Auknar strandveiðar

 

Nr. 28/2011

Auknar strandveiðar

 Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra gaf í dag út reglugerð um auknar strandveiðar í samræmi við nýsamþykkt lög um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða sem birtust í stjórnartíðindum föstudaginn 24. júní.

 Samkvæmt auglýsingu ráðuneytisins, sem tekur gildi 28. júní, fellur úr gildi fyrri auglýsing um stöðvun strandveiða á svæði A, frá Eyja- og Miklaholtshreppi til Súðavíkurhrepps.

 Alþingi samþykkti í lögum nr. 70/2011 að heimila aukningu strandveiða um allt að 1900 tonn af óslægðum þorski og 600 af óslægðum ufsa. Aukningin skiptist þannig að 33,3% koma til aukningar á svæði A, 23,7% á svæði B, 25,5% á svæði C og 17,5% á svæði D.

 Aukningin kemur þegar til framkvæmda þannig að heimildir nú í júnímánuði aukast um 633 tonn af óslægðum þorski og 200 tonn af óslægðum ufsa.

 

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 361/2011, um strandveiðar fiskveiðiárið 2010/2011.

Afnám auglýsingar nr. 583, 9. júní 2011 um stöðvun strandveiða á svæði A, frá Eyja- og Miklaholtshreppi til  Súðavíkurhrepps.

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum