Hoppa yfir valmynd
15. mars 2017 Dómsmálaráðuneytið

Kynnt drög að breytingum á lögum um ríkisborgararétt

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um íslenskan ríkisborgararétt, nr. 100/1952, eru nú til kynningar á vef innanríksráðuneytisins. Unnt er að senda ráðuneytinu ábendingar eða spurningar og skulu þær sendar á netfangið [email protected].

Tilgangur breytinganna er að styrkja lagastoð með hliðsjón af undirbúningi fullgildingar tveggja samninga Sameinuðu þjóðanna um ríkisfangsleysi. Annars vegar samnings frá 1954 um réttarstöðu ríkisfangslausra einstaklinga og hins vegar samnings frá 1961 um að draga úr ríkisfangsleysi.

Breytingunum er ætlað að draga úr ríkisfangsleysi, að einfalda möguleika ungs fólks sem búið hefur hér á landi til að óska eftir íslenskum ríkisborgararétti og að einfalda skráningu íslensks ríkisfangs við fæðingu ef foreldri er íslenskur ríkisborgari.

Frumvarpið var unnið í innanríkisráðuneytinu að höfðu samráði við Þjóðskrá Íslands, Útlendingastofnun og sýslumanninn á höfuðborgarsvæðinu.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum