Hoppa yfir valmynd
21. maí 2019 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Mikilvæg menntasamskipti á vettvangi Fulbright

Styrkþegar ásamt Belindu Theriault, framkvæmdastjóra Fulbright, Oscar Avila, formaður stjórnar Fulbright og Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra.  - mynd
Menntastofnun Íslands og Bandaríkjanna, Fulbright stofnunin, veitir árlega styrki til íslenskra og bandarískra fræðimanna. Móttaka íslenskum styrkþegum til heiðurs var haldin þann 20. maí sl. í ráðherrabústaðnum að viðstaddri Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra.

Öldungardeildarþingmaðurinn J. William Fulbright var hvatamaður þess að gerðir voru tvíhliða samningar milli Bandaríkjanna og annarra þjóða um að efla samskipti á sviði menntamála í kjölfar seinni heimstyrjaldarinnar. Nú eru Fulbright stofnanir starfandi í 51 landi og hafa auk þess 89 aðrar þjóðir undirritað Fulbright samninginn.
Menntastofnun Íslands og Bandaríkjanna var sett á laggirnar árið 1957, alls eru styrkþegar hennar orðnir um 1400 af báðum þjóðernum. Stofnunin starfar með fjárveitingum beggja samningsaðila.

Þeir sem hljóta styrkina nú hyggja á fjölbreytt nám en þeir eru:

Dr. Árni Heimir Ingólfsson, styrkur til rannsóknarstarfa á sviði tónlistarsögu við Yale háskóla.
Dr. Gísli Kort Kristófersson, styrkur til rannsóknarstarfa á sviði geðhjúkrunarfræði við Minnesota háskóla.
Erna Vala Arnardóttir, styrkur til doktorsnáms í tónlist við Suður-Kaliforníu háskóla.
Kristján Páll Guðmundsson, styrkur til masters- og doktorsnáms í sagnfræði við Columbia háskóla.
Ingvi Hrannar Ómarsson, styrkur til mastersnáms í kennslufræðum við Stanford háskóla.
Sóley Kaldal, styrkur til mastersnáms í alþjóðasamskiptum við Yale háskóla.
Lenya Rún Taha Karim, styrkur til þátttöku í sumarnámsstefnu á sviði félagslegrar frumkvöðlastarfsemi við Tennessee háskóla.
Elísa Sverrisdóttir, styrkur til þátttöku í undirbúningsnámskeiði fyrir háskólanám við St. Cloud háskóla.
Katrín Ósk Einarsdóttir, styrkur til þátttöku í undirbúningsnámskeiði fyrir háskólanám við Wisconsin háskóla.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum