Hoppa yfir valmynd
24. september 2020

Hjúkrunarfræðingur Heilsugæslan Mosfellsumdæmi - Umsóknarfrestur framlengdur til 2. nóvember

Hjúkrunarfræðingur Heilsugæslan Mosfellsumdæmi


Heilsugæslan Mosfellsumdæmi auglýsir eftir hjúkrunarfræðingi tímabundið í eitt ár og er starfshlutfall 80-100%. Æskilegt er að viðkomandi hefji störf 1.janúar næstkomandi eða eftir nánara samkomulagi.

Megin starfssvið er skólahjúkrun ásamt hjúkrunarmóttöku á heilsugæslustöð. Um er að ræða spennandi starfsvettvang fyrir hjúkrunarfræðinga sem hafa áhuga á að starfa með börnum og taka þátt í þróun heilsugæsluhjúkrunar. 

Heilsugæslan Mosfellsumdæmi þjónar íbúum í Mosfellsbæ, á Kjalarnesi, í Kjós og nágrenni. Mikil þróunarvinna er í gangi á stöðinni og stöðugt er unnið að því að bæta þjónustu við skjólstæðinga sem hefur fjölgað mikið undanfarin ár. Margvísleg tækifæri og spennandi tímar eru framundan og stefnt er að því að flytja starfsemina í nýtt húsnæði árið 2020.

Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is). 


Helstu verkefni og ábyrgð
Skólahjúkrunarfræðingur sinnir reglubundnu heilbrigðiseftirliti nemenda og fræðslu. Auk þess sinnir hann öðrum viðfangsefnum sem upp kunna að koma í samstarfi við annað starfsfólk skólans og foreldra eftir þörfum hverju sinni.

Hjúkrunarmóttakan er mjög víðtæk, allt frá símaráðgjöf til bráðaþjónustu. Móttakan sinnir fólki á öllum aldri og skiptist í opna móttöku, bókaða móttöku og símaráðgjöf. 


Hæfnikröfur
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Reynsla af skóla- og/eða heilsugæsluhjúkrun æskileg
- Reynsla af fjölskylduhjúkrun æskileg
- Áhugi og vilji til að vinna með börnum og fjölskyldum
- Þekking á forvarnar- og heilsueflingarstarfi
- Færni í fyrirlestrahaldi
- Þekking á réttindum barna
- Sjálfstæði í starfi, skiplagningarhæfni og öguð vinnubrögð
- Reynsla og áhugi á teymisvinnu
- Reynsla af bráða- og slysamóttöku er kostur
- Mikil samskiptahæfni og sveigjanleiki
- íslenskukunnátta og góð almenn tölvukunnátta


Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi. Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar um menntun og staðfest afrit af opinberu starfsleyfi. 

Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.


Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 02.11.2019


Nánari upplýsingar veitir
Dagný Hængsdóttir - [email protected] - 513-6050



Mosfellsumdæmi hjúkrun
Þverholti 2
270 Mosfellsbær


Smellið hér til að sækja um starf


 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum