Hoppa yfir valmynd
4. desember 2019

Landvörður - Skaftafell og Breiðamerkursandur

Landvörður

Staða landvarðar í Skaftafelli og á Breiðamerkursandi er laus til umsóknar. Um er að ræða krefjandi, fjölbreytt og skemmtilegt starf sem heyrir undir þjóðgarðsvörð á suðursvæði. Um tímabundið starf er að ræða út apríl með möguleika á tímabundinni framlengingu að þeim tíma liðnum. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf um miðjan janúar. 

Helstu verkefni og ábyrgð
Störf landvarða eru krefjandi, fjölbreytt og skemmtilegt og fela m.a. í sér:
- Fræðslu til gesta. 
- Eftirlit, m.a. með göngustígum, bílastæðum, náttúru svæðis o.fl.
- Upplýsingagjöf og afgreiðslu í gestastofu.
- Umhirðu svæðis.
- Önnur tilfallandi verkefni.

Hæfnikröfur
- Menntun og reynsla sem nýtist í starfi.
- Landvarðaréttindi sem og reynsla af landvörslu.
- Áhugi og þekking á náttúruvernd og umhverfismálum.
- Góð staðþekking á suðursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs.
- Góð íslensku- og enskukunnátta; fleiri tungumál kostur.
- Gild skyndihjálpar- og ökuréttindi, aukin ökuréttindi kostur.
- Samskiptahæfni, skipulagsfærni og þjónustulund.
- Sjálfstæði og frumkvæði í störfum.

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsækjendur eru hvattir til að hengja ferilskrá við rafrænu umsóknina.
Bæði konur og karlar eru hvött til að sækja um störfin. Gert er ráð fyrir að viðkomandi hefji störf 15 . janúar 2020.

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 16.12.2019

Nánari upplýsingar veitir
Hrafnhildur Ævarsdóttir - [email protected] - 470 8302


Vatnajökulsþjóðgarður
Landverðir Skaftafell
Skaftafellsstofa Skaftafelli
785 Öræfi


Smelltu hér til að sækja um starfið
 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum