Hoppa yfir valmynd
9. september 2020

Þjóðgarðsvörður á norðursvæði - Askja og Herðubreiðarlindir

Þjóðgarðsvörður á norðursvæði - Askja og Herðubreiðarlindir


Vatnajökulsþjóðgarður auglýsir starf þjóðgarðsvarðar á hálendi norðursvæðis laust til umsóknar. Leitað er að metnaðarfullum og framsýnum stjórnanda með mikla samskiptahæfni og áhuga á náttúruvernd og umhverfismálum. 

Hér er auglýst staða þjóðgarðsvarðar á norðursvæði með fasta starfsstöð í Mývatnssveit og umsjónarsvæði sem nær t.d. til Öskju, Herðubreiðar, Holuhrauns og Gæsavatnaleiðar. Þjóðgarðsvörður mun eiga náið samstarf við þjóðgarðsvörð í Ásbyrgi og aðra þjóðgarðsverði. Næsti yfirmaður þjóðgarðsvarðar er framkvæmdastjóri Vatnajökulsþjóðgarðs en þjóðgarðsvörður mun einnig vinna náið með svæðisráði norðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs. 


Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með daglegum rekstri og stjórnun svæðisins
- Framkvæmd stjórnunar- og verndaráætlunar þjóðgarðsins
- Leiða starf við landvörslu og fræðslu á svæðinu
- Samskipti og samvinna við hagsmunaaðila s.s. fyrirtæki, stofnanir, sveitarfélög, skóla og íbúa á nærsvæðum þjóðgarðsins
- Þátttaka í þróun og stefnumótun þjóðgarðsins
- Almenn stjórnsýsla og útgáfa leyfa fyrir hálendi norðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs


Hæfnikröfur
- Reynsla af stjórnun, rekstri og/eða mannaforráðum
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Þekking á umhverfismálum, náttúruvernd eða ferðaþjónustu
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði, skipulögð vinnubrögð og leiðtogahæfileikar
- Þekking á öryggismálum og reynsla af ferðalögum til fjalla er kostur
- Þekking á starfsemi þjóðgarða og friðlýstra svæða er kostur
- Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
- Góð íslensku- og enskukunnátta 


Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Sótt er um starfið á Starfatorgi og skal umsóknum fylgja ítarlegt yfirlit um menntun og starfsferil ásamt kynningarbréfi þar sem fram kemur ástæða umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. 
Við hvetjum bæði karla og konur til að sækja um starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. 


Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 22.09.2020


Nánari upplýsingar veitir
Magnús Guðmundsson - [email protected] - 575 8400
Ragnheiður Björgvinsdóttir - [email protected] - 575 8400



Vatnajökulsþjóðgarður
Urriðaholtsstræti 6-8
210 Garðabær


Smellið hér til að sækja um starf


 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum