Hoppa yfir valmynd
6. desember 2019

Lögfræðingur

Þekkir þú löggjöf um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka?

Svið lagalegs eftirlits og vettvangsathugana vinnur þvert á önnur eftirlitssvið Fjármálaeftirlitsins. Á sviðinu starfar öflugur hópur lögfræðinga að fjölbreyttum verkefnum er varða eftirlit með fjármálafyrirtækjum, vátryggingafélögum, lífeyrissjóðum og öðrum eftirlitsskyldum aðilum á fjármálamarkaði. Verkefni eru einkum tengd starfsleyfum, virkum eignarhlutum, aðgerðum gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, hæfismötum, starfsemi yfir landamæri, samrunum og veitingu umsagna um samþykktir og reglur lífeyrissjóða. Auk þess kemur lagalegt eftirlit að margvíslegum lagalegum álitamálum tengdum starfsemi eftirlitsskyldra aðila og tekur þátt í vinnu við setningu laga, reglna og tilmæla.

Leitað er að lögfræðingi sem þekkir m.a. löggjöf um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og hefur reynslu af eftirliti eða störfum á fjármálamarkaði.

Helstu verkefni og ábyrgð
- Lagalegt eftirlit með eftirlitsskyldum aðilum, með sérstaka áherslu á eftirlit með aðgerðum gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka
- Lögfræðiráðgjöf í álitamálum tengdum starfsemi eftirlitsskyldra aðila til annarra sviða stofnunarinnar
- Þátttaka í innlendu og erlendu samstarfi
- Þátttaka í innra starfi Fjármálaeftirlitsins

Hæfnikröfur
- Meistara- eða embættispróf í lögfræði
- Þekking á löggjöf um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka
- Þekking á löggjöf á fjármálamarkaði og stjórnsýslurétti
- Reynsla af eftirlitsstörfum eða störfum tengdum fjármálamarkaði
- Lipurð í mannlegum samskiptum og hæfni til að vinna með öðrum
- Frumkvæði, öguð vinnubrögð, ábyrgð, sjálfstæði og metnaður í starfi
- Hæfni til að tjá sig og miðla upplýsingum í ræðu og riti á íslensku og ensku

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Frekari upplýsingar veita Linda Kolbrún Björgvinsdóttir, forstöðumaður lagalegs eftirlits ([email protected]) og Árni Ragnar Stefánsson, mannauðsstjóri ([email protected]).

Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Fjármálaeftirlitsins, www.fme.is eða á www.starfatorg.is.

Umsóknarfrestur er til og með 16. desember nk. Umsóknum um starfið þarf að fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd. 

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 16.12.2019

Nánari upplýsingar veitir
Linda Kolbrún Björgvinsdóttir - [email protected] - 520-3700
Árni Ragnar Stefánsson - [email protected] - 520-3700


Fjármálaeftirlitið
Lagalegt eftirlit og vettvangsathuganir
Katrínartúni 2
105 Reykjavík


Smelltu hér til að sækja um starfið
 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum