Hoppa yfir valmynd
30. júní 2020

Sviðsstjóri Þjóðleikhússins

Sviðsstjóri Þjóðleikhússins


Óskað er eftir kraftmiklum og sjálfstæðum einstaklingi með yfirburða skipulags- og samskiptahæfni og mikinn áhuga á starfi leikhúsa til að leiða teymi sviðsfólks í Þjóðleikhúsinu. Sviðsstjóri sér um að dagleg starfsemi á leiksviðum hússins sé samkvæmt heildarskipulagi, skipuleggur vinnu sviðsfólks og tæknilegar útfærslur leiksýninga. Við leitum að jákvæðum, skipulögðum og lausnamiðuðum einstaklingi með reynslu af verk- og verkefnastjórnun sem hefur metnað og drifkraft til að búa lista- og tæknifólki hússins skapandi og öruggt vinnuumhverfi og stuðla að stöðugum umbótum á sviðum Þjóðleikhússins í góðu samstarfi við allar deildir hússins. 

Helstu verkefni og ábyrgð
Daglegur rekstur leiksviða Þjóðleikhússins í samræmi við áherslur og heildarskipulag
Teymistjórn sviðsdeildar og samhæfing milli sviða og deilda
Umsjón með tæknibúnaði á leiksviðum hússins
Umsjón með öryggismálum á og við leiksvið hússins
Tæknileg útfærsla sviðsetninga 
Keyrsla sýninga
Skipting leikmynda

Hæfnikröfur
Viðeigandi menntun sem nýtist í starfi
Reynsla af verkstjórn, verkefnastjórnun, starfi á sviði leikhúsa eða af sambærilegum vettvangi
Reynsla af sýningarstjórn kostur
Góð almenn tölvu- og tæknikunnátta
Góð tök á ensku og Norðurlandamáli kostur
Jákvæðni, lipurð, skipulagshæfileikar og góð hæfni í mannlegum samskiptum.

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Þjóðleikhúsið er jafnlaunavottaður vinnustaður.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf 4. ágúst eða eftir samkomulagi.

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 10.07.2020


Nánari upplýsingar veitir
Steinunn Þórhallsdóttir - [email protected] - 5851269


Þjóðleikhúsið
Leiksvið fastráðnir
Lindargata 7
101 Reykjavík

Smellið hér til að sækja um starf

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum