Hoppa yfir valmynd
16. júlí 2009 Dómsmálaráðuneytið

Lögreglusamþykkt fyrir Fljótsdalshérað

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
590/2009

Nr. 590/2009 11. júní 2009


LÖGREGLUSAMÞYKKT

fyrir Fljótsdalshérað.


I. KAFLI

Um reglu, velsæmi og almennt öryggi á almannafæri.

1. gr.

Með almannafæri er í reglugerð þessari átt við götur, vegi, gangstéttar, gangstíga, svæði ætluð til almenningsnota, gönguleiðir og staði sem ferðafólk venur komur sínar á og staði sem opnir eru almenningi, svo sem kvikmyndahús, leikhús, samkomuhús, söfn, veitingastaði, verslanir, leiktækjastaði, bifreiðastöðvar, biðskýli og söluturna.

Með leiktækjastað er átt við stað þar sem aðgangur er veittur að leiktækjum, spilakössum, knattborðum, tölvum o.þ.h., gegn borgun.

2. gr.

Uppþot, áflog, óspektir eða önnur háttsemi sem raskar allsherjarreglu má ekki eiga sér stað á almannafæri og ekki mega menn þyrpast þar saman ef það tálmar umferð eða veldur vegfarendum óþægindum.

Enginn má áreita aðra á almannafæri eða sýna þar af sér ósæmilega háttsemi.

3. gr.

Bannað er að hafast nokkuð að sem veldur ónæði eða raskar næturró manna.

Lögreglustjóri getur bannað notkun hátalara, hljómflutningstækja, hljóðfæra eða annars þess háttar á eða við almannafæri ef ástæða er til að ætla að það valdi verulegu ónæði eða truflun.

Bæjarstjórn getur bannað neyslu áfengis á almannafæri á tilteknum tíma á tilteknum svæðum. Slíka samþykkt skal tilkynna lögreglustjóra og birta almenningi.

4. gr.

Þegar fjölmenni safnast saman á almannafæri svo sem í eða við biðstöðvar almenningsvagna og leigubifreiða, miðasölur, banka, veitingastaði, verslanir eða aðra afgreiðslustaði, skal mynda röð þannig að þeir sem fyrstir koma fái fyrstir afgreiðslu.

5. gr.

Hver sá sem staddur er á almannafæri er skyldur til að segja til nafns síns, kennitölu og heimilis þegar lögreglan krefst þess.

Skylt er að hlýða fyrirmælum sem lögreglan gefur s.s. vegna umferðarstjórnar eða til þess að halda uppi reglu á almannafæri.

6. gr.

Lögreglan getur vísað þeim mönnum í burtu af almannafæri sem með háttsemi sinni valda vegfarendum eða íbúum í nágrenninu ónæði.

Sama á við um þá sem valda óspektum, hættu eða hneykslan á almannafæri sökum ölvunar eða af öðrum ástæðum.

7. gr.

Meðferð vatns við hvers konar þrif utandyra er óheimil nema í frostlausu veðri ef það veldur rennsli á gangstétt, gangstíg eða götu þannig að valdi hættu eða óþægindum.

Í götubrunna og göturæsi má ekki hella mengandi efnum svo sem spilliefnum eða efnum sem valdið geta mengun eða skemmdum í holræsakerfinu.

Eiganda eða umráðamanni húss er skylt að fjarlægja af húsi sínu snjó og grýlukerti sem fallið geta niður og valdið hættu fyrir vegfarendur.

8. gr.

Öllum ber að gæta þess að ganga vel um á almannafæri og skemma þar ekki hluti sem ætlaðir eru til almenningsnota eða prýði. Þetta á einnig við þá hluta af húsum og öðrum mannvirkjum sem liggja að almannafæri.

Á mannvirki og hluti má ekki mála, teikna eða festa auglýsingar nema með leyfi eiganda eða umráðamanns.

Óheimilt er að reisa auglýsingaskilti á almannafæri nema með leyfi bæjarstjórnar. Bæjarstjórn skal tilkynna lögreglustjóra um slík leyfi. Uppfestar auglýsingar skulu hlutaðeigendur taka niður, þegar þær hafa fullnægt tilgangi sínum, og hreinsa vel staðinn þar sem þær voru hafðar. Löglega uppfestar auglýsingar má enginn rífa niður eða gera ólæsilegar á annan hátt.

9. gr.

Bæjarstjórn getur sett umgengnisreglur um skemmtigarða, leikvelli, lystigarða, tjarnir, kirkjugarða og önnur opinber svæði, enda séu reglurnar festar upp við innganginn eða á öðrum áberandi stað.

Hvorki má troða niður ræktaða bletti, grasreiti, blómabeð og limgerði á almannafæri né slíta þar upp blóm eða annan gróður.

Í dreifbýli er bannað að spilla gróðri, nema um sé að ræða jarðarbætur á vegum ábúenda á bújörðum eða aðrar heimilar framkvæmdir.

Eigi má gista í tjöldum, húsbílum, hjólhýsum og tjaldvögnum á almannafæri í þéttbýli utan sérmerktra svæða.

10. gr.

Tilkynna skal lögreglustjóra svo fljótt sem verða má um fyrirhugaðar hópgöngur, útifundi, tónleika og aðrar útisamkomur í því skyni að hann geti gert viðeigandi ráðstafanir varðandi stjórnun umferðar.

Lögreglustjóri getur breytt gönguleið eða samkomustað telji hann það nauðsynlegt.

11. gr.

Meðferð skotvopna á almannafæri er bönnuð nema með sérstakri undanþágu frá lögreglustjóra.

Ekki má á almannafæri ganga með logandi blys, kveikja í bálköstum né halda skoteldasýningar nema með leyfi lögreglustjóra. Um meðferð skotelda fer eftir reglugerð um skotelda.

Um meðferð sprengiefnis fer samkvæmt reglugerð um sprengiefni.

12. gr.

Enga atvinnu sem tálmar umferð má reka á almannafæri.

Um starfsemi verslana er sérstaklega vísað til laga um verslunaratvinnu og samþykktar Fljótsdalshéraðs um farandsölu.

Bæjarstjórn getur sett samþykktir um farandsölu og sölu á götum, torgum og öðrum stöðum.

13. gr.

Lögreglustjóri getur bannað öllum óviðkomandi, sem ekki eiga brýnt erindi, umferð út í skip, sem liggja í höfn.

14. gr.

Ekki má gera jarðrask, svo sem skurði í gangstéttir, götur eða torg né raska þeim á annan hátt, nema með leyfi skipulags- og byggingaryfirvalda. Skulu skipulags- og byggingaryfirvöld við veitingu leyfis setja skilyrði sem nauðsynleg eru til að afstýra hættu fyrir vegfarendur og tilkynna leyfisveitingu til lögreglustjóra. Að verki loknu skal leyfishafi færa það í samt lag sem raskað var.

Þegar gerður er skurður í gangstétt skal sá sem verkið vinnur sjá um að tryggja öryggi gangandi vegfarenda og annarra, svo sem með því að sjá fyrir göngubrautum og tryggja að vegfarendur séu aðvaraðir um farartálmann, t.d. með ljósum, glitmerkjum o.þ.h. þegar dimmt er. Slík verk skulu unnin þannig að sem minnstur farartálmi verði. Sé nauðsynlegt að loka gangstétt vegna framkvæmda skal hjáleið tryggð og afgirt frá umferð ökutækja innan þéttbýlismarka og annars staðar þar sem umferð er mikil.

Skipulags- og byggingaryfirvöld geta bannað umferð um götur að nokkru eða öllu leyti meðan á verki stendur eða skipað fyrir um hvernig umferðinni skuli hagað. Haft skal samráð við vegamálastjóra þegar það á við. Einnig geta skipulags- og byggingaryfirvöld ákveðið að skurðir í götur séu byrgðir og uppgröftur fjarlægður þannig að umferð sé óhindruð um göturnar á þeim tíma sem ekki er unnið, svo sem að næturlagi og um helgar. Þá geta skipulags- og byggingaryfirvöld, ef þau telja framkvæmdirnar dragast um of, látið setja í samt lag það sem raskað var, eftir atvikum á kostnað þeirra sem ábyrgð bera á framkvæmd.

Setja skal upp skilti og merkingar til leiðbeiningar fyrir ökumenn vegna framkvæmda sem truflað geta umferð. Sé fyrirsjáanlegt að framkvæmdir muni taka lengri tíma en 7 daga skal setja upp ítarlegri skilti þar sem fram koma upplýsingar um framkvæmdina, á hvers vegum hún er og hvað hún muni standa lengi.

Þá geta skipulags- og byggingaryfirvöld beint þeim fyrirmælum til ökumanna og eigenda ökutækja að þeir leggi ekki ökutækjum á tilteknum svæðum svo unnt sé að framkvæma hvers konar nauðsynlegar viðgerðir eða hreinsanir á götum. Tilmælin skulu tilkynnt með upplýsingaskiltum eða öðrum tryggum hætti. Sé slíkum tilmælum ekki sinnt geta skipulags- og byggingaryfirvöld látið flytja ökutæki á brott án frekari viðvörunar svo viðgerð eða hreinsun geti farið fram. Tilkynna skal eiganda ökutækis og lögreglu um brottflutninginn og hvar má vitja ökutækisins sé það ekki flutt aftur á sama stað eftir að viðgerð eða hreinsun lýkur.

15. gr.

Í samræmi við samþykkt um umgengni og þrifnað utanhúss á starfssvæði heilbrigðisnefndar Austurlands er eiganda eða umráðamanni húss, girðinga og annarra mannvirkja skylt að halda eignum vel við og halda lóðum og lendum hreinum og snyrtilegum.

Húseigendum eða umráðamönnum húseigna og jarða er skylt að hlíta fyrirmælum bæjarstjórnar um frágang girðinga o.þ.h. sem liggja að almannafæri. Einnig skal húsráðendum skylt að snyrta allan gróður, þ.m.t. trjágróður sem liggur að götum, gangstéttum og gangstígum, þannig að umferð vegfarenda sé óhindruð. Bæjarstjórn getur sett nánari reglur um skerðingu gróðurs. Hlíti húseigandi eða lóðarhafi ekki fyrirmælum bæjarstjórnar um frágang samkvæmt þessari grein er heimilt að láta vinna verkið á hans kostnað enda sé honum tilkynnt um það með hæfilegum fyrirvara.

Þegar hús eða annað mannvirki brennur eða það er flutt brott, án þess að annað sé byggt í staðinn, er eiganda skylt að ganga svo frá hússtæðinu að ekki stafi af því hætta, óþrifnaður eða óprýði. Sama gildir um hús sem standa yfirgefin.

Þegar hús er byggt, rifið, endurbyggt eða flutt er eiganda og/eða verktaka skylt að haga sér eftir þeim fyrirmælum sem bæjarstjórn gefur til að forðast farartálma, hættu eða óþægindi fyrir vegfarendur og skal hann setja upp skilti til leiðbeiningar eftir því sem við á. Við flutning húsa skal eigandi og/eða verktaki kalla til lögreglu eftir því sem umferðarlög kveða á um.

Girðingar sem hafa verið reistar vegna mannvirkjagerðar skal fjarlægja þegar þeirra er ekki lengur þörf, sbr. ákvæði girðingarlaga.

Um öryggi á vinnusvæðum við almannafæri gilda ákvæði skipulags- og byggingarlaga auk reglugerða sem settar eru samkvæmt þeim og ákvæði laga um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum ásamt reglum settum á grundvelli þeirra.

16. gr.

Enginn má án leyfis húsráðanda láta fyrir berast á lóðum hans eða landi. Auk þess getur lögreglan bannað mönnum að hafast þar við ef hún telur að það geti valdið óþægindum eða hættu.

Ekki má fara í híbýli manna í söluerindum ef húsráðandi leggur við því bann.

17. gr.

Enginn má fleygja rusli eða öðru þess háttar á almannafæri nema í þar til gerð ílát eða á viðurkenndum móttökustöðvum sveitarfélagsins. Enginn má fleygja rusli eða öðru þess háttar á lóð eða land annars manns.

Hver sem það gerir skal flytja óhreinindin tafarlaust í burt á sinn kostnað.

Aðeins er heimilt að henda mold, grjóti og garðaúrgangi á staði sem til þess eru ætlaðir og bæjaryfirvöld vísa á til þeirra nota. Óheimilt er að fleygja þar öðrum úrgangi.

Varðandi meðhöndlun úrgangs vísast að öðru leyti til laga, reglugerða og samþykkta Fljótsdalshéraðs þar um.

II. KAFLI

Um ökutæki, umferð o.fl.

18. gr.

Á almannafæri má ekki leggja eða setja neitt það sem hindrar umferð.

Á götum má ekki hindra umferð með skemmtunum eða leikjum nema með leyfi lögreglustjóra.

Bannað er að leggja ökutæki á gangstéttum. Lögreglustjóri getur, að fengnum tillögum bæjarstjórnar, veitt undanþágu frá ofangreindu.

Vörubifreiðum sem eru 5 tonn að leyfðri heildarþyngd eða meira og fólksflutningabifreiðum sem flytja mega 10 farþega eða fleiri má ekki leggja á götum eða almenningsbifreiðastæðum nema þau séu til þess ætluð. Bann þetta gildir einnig um hvers konar vinnuvélar og dráttarvélar án tillits til þunga þeirra. Bæjarstjórn getur veitt undanþágu frá banni þessu og skal þá afmarka og merkja sérstaklega þá staði þar sem undanþága hefur verið veitt.

Lögreglustjóri getur bannað stöðu eftirvagna og tengivagna, s.s. hestaflutningavagna, hjólhýsa, dráttarkerra, báta og þess háttar tækja sem og húsbíla, á götum og almennum bifreiðastæðum sem þykja valda óþægindum, óþrifnaði eða hættu.

Í samræmi við ákvæði laga um meðhöndlun úrgangs, reglugerðar um hollustuhætti, og samþykkt um umgengni og þrifnað utanhúss á starfssvæði heilbrigðisnefndar Austurlands er bannað að skilja eftir, flytja eða geyma úrgang, þ.m.t. ökutæki án skráningarmerkja, á þann hátt að valdið geti skaða, mengun eða lýti á umhverfinu.

19. gr.

Vélar kyrrstæðra bifreiða og vinnuvéla sem ekki eru í notkun, er óheimilt að hafa í gangi eða skilja eftir í gangi lengur en tvær mínútur, svo komast megi hjá mengun og hávaða á almannafæri og annars staðar þar sem ætla má að slíkt valdi óþægindum.

20. gr.

Almennur hámarkshraði í þéttbýli Fljótsdalshéraðs skal vera 50 km á klst. Á einstökum götum eða hverfum getur lögreglustjóri, að fengnum tillögum bæjarstjórnar, ákveðið annan hámarkshraða.

Lögreglustjóri getur að fengnum tillögum bæjarstjórnar, takmarkað eða bannað umferð stórvirkra vinnuvéla, vörubifreiða eða annarra ökutækja á einstökum götum ef slík umferð er álitin hættuleg eða til sérstakra óþæginda fyrir aðra umferð eða íbúa.

Stórvirkar vinnuvélar, vörubifreiðar, rútur eða önnur stærri atvinnutæki skulu geymd á atvinnulóðum eða á þar til merktum stæðum þegar þau eru ekki í notkun.

Allur akstur torfærutækja, s.s. vélsleða og torfæruhjóla, er bannaður innan þéttbýlis. Bæjarstjórn getur þó heimilað undanþágu frá þessu ákvæði á afmörkuðum svæðum og skal sú ákvörðun tilkynnt lögreglustjóra.

21. gr.

Á og við götur eða vegi eða þar sem hætta stafar af má ekki gera rennibrautir, renna sér á skíðum, hjólaskautum, hjólabrettum, skautum, sleðum eða iðka leiki, skemmtanir eða íþróttir þannig að hætta eða umferðartruflun geti hlotist af. Einnig er bannað að hanga í bifreiðum, dráttarvélum, vögnum eða öðrum farartækjum sem eru á ferð eða festa við þau sleða, handvagn eða annað sem óþægindum eða hættu getur valdið.

Lögreglustjóri getur heimilað skíða-, sleða- eða rennibrautir á vegum í alfaraleið og skulu þeir vegir sérstaklega merktir sem slíkir. Þar mega ekki aðrir fara með ökutæki en íbúar gatnanna eða menn í erindum þeirra og skal þá ýtrustu varúðar og tillitsemi gætt.

22. gr.

Ef ís á sjó eða vötnum þykir ekki nógu traustur getur lögreglustjóri bannað alla umferð um hann.

23. gr.

Þeir sem flytja farm um götur sveitarfélags skulu gæta þess vandlega að ganga þannig frá farminum að ekki valdi óþrifnaði eða hættu. Ef eitthvað hrynur niður við flutning, fermingu eða affermingu á almannafæri er stjórnanda flutningstækisins skylt að hreinsa það upp þegar í stað.

III. KAFLI

Um veitingastaði, skemmtanahald o.fl.

24. gr.

Um leyfi til rekstrar veitingastaða, útleigu samkomusala í atvinnuskyni og leyfi til skemmtanahalds gilda ákvæði laga um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og reglugerða sem settar eru á grundvelli þeirra. Veitingastaði án áfengisveitinga (flokkur I) er heimilt að hafa opna allan sólarhringinn. Stafi íbúum í nágrenni slíks veitingastaðar ónæði af rekstrinum getur bæjarstjórn þó takmarkað afgreiðslutíma hans.

Ákveði bæjarstjórn ekki annað eru áfengisveitingar á umfangslitlum áfengisveitingastöðum (flokkur II) heimilar frá kl. 06.00 til kl. 23.00 alla daga. Með sama fyrirvara eru áfengisveitingar á umfangsmiklum áfengisveitingastöðum (flokkur III) heimilar frá kl. 06.00 til kl. 23.30 virka daga og til kl. 03.00 aðfararnætur laugardaga, sunnudaga og almennra frídaga.

Bæjarstjóri getur heimilað að almennar samkomur, þar sem áfengisveitingar eru leyfðar, megi standa lengur eða skemur en að framan greinir, ef sérstaklega stendur á.

Heimilt er að reka heimsendingarþjónustu allan sólarhringinn, enda hafi viðkomandi tilskilin leyfi. Gæta skal þess að starfsemin valdi ekki ónæði.

Áfengisveitingastöðum skal lokað þegar heimiluðum áfengisveitingatíma lýkur og má ekki opna þá að nýju að morgni dags fyrr en a.m.k. tvær klukkustundir eru liðnar frá lokun. Allir gestir skulu hafa yfirgefið áfengisveitingastað eigi síðar en einni klukkustund eftir lokun hans.

Afgreiðslu- eða þjónustutími verslana og annarra þjónustufyrirtækja er frjáls að því marki sem heimilt er að lögum er gilda á hverjum tíma eða reglum sem settar eru samkvæmt þeim. Bæjarstjórn getur þó takmarkað afgreiðslu- eða þjónustutíma hjá einstökum aðilum ef starfsemin veldur nágrönnum eða vegfarendum ónæði.

25. gr.

Hver sá sem rekur veitinga- eða gististað, kvikmyndahús, leikhús eða annað samkomuhús eða heldur almenna skemmtun eða sýningu, skal sjá um að allt fari þar vel fram og starfsemin valdi ekki nágrönnum eða vegfarendum ónæði.

Slík starfsemi skal háð sérstöku eftirliti lögreglu og er henni heimilt að fara um samkomusali og önnur húsakynni sem gestir eiga aðgang að.

Á öllum gististöðum skal haldin nákvæm gestaskrá.

26. gr.

Enginn má reka leiktækjastað eða þess háttar starfsemi gegn borgun nema með leyfi lögreglustjóra að fenginni umsögn bæjarstjórnar. Leyfi skal ekki veita til lengri tíma en fjögurra ára í senn. Það skal bundið við nafn leyfishafa og rekstur á tilteknum stað. Ef leyfishafi brýtur gegn ákvæðum greinar þessarar eða reksturinn þykir ekki fara honum vel úr hendi getur lögreglustjóri svipt hann leyfinu enda hafi leyfishafi ekki sinnt áminningu um úrbætur.

Börnum yngri en 16 ára er ekki heimill aðgangur að slíkum leiktækjastöðum nema í fylgd með forráðamönnum. Miða skal aldur við fæðingarár en ekki fæðingardag.

IV. KAFLI

Um götuspjöld og húsnúmer.

27. gr.

Bæjarstjórn ákveður nöfn á götum og lætur festa upp skilti með þeim, þar sem þurfa þykir, svo sem við gatnamót og á fasteignir.

Húseigendur skulu merkja hús sín með húsnúmeri og eftir atvikum bókstöfum, á götuhlið eða öðrum áberandi stað, vegfarendum og þjónustuaðilum til glöggvunar.

V. KAFLI

Um útivistartíma barna og ungmenna.

28. gr.

Um útivistartíma barna og ungmenna gilda ákvæði barnaverndarlaga og reglugerða sem settar eru á grundvelli þeirra.

VI. KAFLI

Um búfjárhald og hunda- og kattahald.

29. gr.

Búfjárhald er bannað í þéttbýli nema á skilgreindum lögbýlum og svæðum þar sem það er sérstaklega heimilað samkvæmt skipulagsáætlun. Hunda- og kattahald er bannað í þéttbýli nema með leyfi bæjarstjórnar, sbr. samþykktir Fljótsdalshéraðs um hundahald og um kattahald.

Lausaganga stórgripa er bönnuð í öllu sveitarfélaginu, í samræmi við samþykkt um bann við lausagöngu stórgripa í Fljótsdalshéraði.

Um lausagöngu búfjár fer samkvæmt vegalögum og lögum um búfjárhald o.fl.

Um rekstur búpenings til afrétta, hirðingu hans og fjallskil fer eftir ákvæðum fjallskilasamþykktar Múlasýslna.

Umferð reiðhesta er bönnuð innan þéttbýlismarka annars staðar en á merktum reiðstígum nema með sérstöku leyfi eða samkvæmt samþykkt bæjarstjórnar.

VII. KAFLI

Um refsingar, kostnað, gildistöku o.fl.

30. gr.

Ef einhver lætur það ógert sem honum er skylt að gera samkvæmt lögreglusamþykkt þessari getur lögreglustjóri látið framkvæma það eða gert aðrar nauðsynlegar ráðstafanir til að hindra að vanrækslan valdi tjóni. Kostnaður sem leiðir af framkvæmdum og ráðstöfunum lögreglustjóra greiðist af þeim er ábyrgð ber á vanrækslunni.

31. gr.

Brot gegn lögreglusamþykkt þessari varða sektum sbr. 6. gr. laga nr. 36 18. maí 1988 um lögreglusamþykktir nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum eða reglugerðum.

Mál sem varða brot gegn ákvæðum lögreglusamþykktar þessarar skal fara með að hætti laga um meðferð opinberra mála.

32. gr.

Lögreglusamþykkt þessi, sem bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs hefur samið og samþykkt samkvæmt lögum um lögreglusamþykktir nr. 36, 18. maí 1988 og reglugerð um lögreglusamþykktir nr. 1127/2007, staðfestist hér með og öðlast þegar gildi.

Jafnframt er felld úr gildi lögreglusamþykkt fyrir Fljótsdalshérað nr. 450, 4. ágúst 1995, að því er tekur til lögsagnarumdæmis sveitarfélagsins Fljótsdalshéraðs.

Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 11. júní 2009.

Ragna Árnadóttir.

Skúli Þór Gunnsteinsson



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum