Hoppa yfir valmynd
18. október 2018

Lektor í kviðarhols- og brjóstaskurðlækningum

Lektor í kviðarhols- og brjóstaskurðlækningum - Heilbrigðisvísindasvið – Háskóli Íslands - Reykjavík

Laust er til umsóknar 25% starf lektors í kviðarhols- og brjóstaskurðlækningum á fræðasviði skurðlækninga við Læknadeild Háskóla Íslands. Forsenda fyrir ráðningu í starfið er að umsækjandi sé við störf á Landspítala og hafi þar aðstöðu á skurðlækningasviði til að sinna klínískri kennslu læknanema.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Doktorspróf eða próf sem jafnað verður til doktorsprófs, eða jafngild hæfni að mati dómnefndar.
  • Sérfræðileyfi í kviðarhols- og brjóstaskurðlækningum (almennar skurðlækningar)
  • Rannsóknavirkni á fræðasviðinu, sjálfstæði og frumkvæði í rannsóknum.
  • Góð reynsla af háskólakennslu, fræðilegri og klíniskri, og leiðbeiningu til æðri háskólagráðu.
  • Stjórnunarreynsla.
  • Reynsla af öflun styrkja til rannsóknarstarfa.
  • Góð samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum.

Sem lektor mun sá sem ráðinn verður uppfylla sína kennsluskyldu innan fræðasviðs skurðlækninga, þ.m.t. klínísk kennsla á Landspítala. Þá stundar hann rannsóknir í sinni sérgrein á fræðasviðinu.

Við ráðningu verður miðað við, að sá er starfið hlýtur falli sem best að aðstæðum og þörfum Læknadeildar.

Ráðið verður í starfið til fimm ára, með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009. Rektor er heimilt að veita framgang í starfi strax við nýráðningu uppfylli viðkomandi þau skilyrði sem kveðið er á um í reglum nr. 263/2010 um framgang og tímabundna ráðningu akademískra starfsmanna við Háskóla Íslands.

Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og reglna um Háskóla Íslands nr. 569/2009.

Gert er ráð fyrir að sá sem ráðinn verður í starfið sé samhliða í starfi við Háskóla Íslands og Landspítala en hafi ráðningarsamning við hvora stofnun fyrir sig, sbr. samstarfssamning stofnananna frá 3. desember 2012, sjá nánar hér.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags háskólakennara og fjármálaráðherra.

Umsóknarfrestur um ofangreint starf er til og með 19. nóvember 2018.

Nánari upplýsingar um starfið veita Páll Helgi Möller, prófessor (s. 543-1000 / [email protected]) og Engilbert Sigurðsson, forseti Læknadeildar (s. 525-4879 / [email protected]).

Sótt er um starfið á vefsíðu Háskóla Íslands undir laus störf.

Umsækjendur skulu láta fylgja með umsókn sinni vottorð um námsferil sinn og störf, ritaskrá, skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið og rannsóknaráætlun ef til ráðningar kemur. Enn fremur er ætlast til þess að umsækjendur láti fylgja með umsagnir um kennslu- og stjórnunarstörf sín, eftir því sem við á. Ef ekki er unnt að skila fylgigögnum með umsókn á rafrænu formi skal skila þeim í þríriti til vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík. Öllum umsækjendum verður svarað og þeim tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.

Við ráðningar í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans.

Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.

Innan Háskólans eru fimm fræðasvið og deildir skólans eru 25 talsins. Háskóli Íslands býður fjölbreytt nám á öllum stigum og er eini háskóli landsins sem býður grunnnám og framhaldsnám á öllum helstu fræðasviðum. Jafnframt er Háskóli Íslands öflugur rannsóknaháskóli á alþjóðlega vísu og hafa vísindamenn Háskólans hlotið fjölmargar alþjóðlegar viðurkenningar fyrir vísindastörf sín.

Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands er í fararbroddi á sviði heilbrigðismála á Íslandi og gegnir lykilhlutverki í uppbyggingu íslenska heilbrigðiskerfisins með menntun heilbrigðisstarfsmanna. Helstu sérfræðingar þjóðarinnar í heilbrigðisvísindum koma að kennslu og rannsóknum á sviðinu.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum