Hoppa yfir valmynd
8. nóvember 2018

Eftirlitsmaður í flugleiðsögudeild

 
Eftirlitsmaður í flugleiðsögudeild

Starfið: Samgöngustofa óskar eftir að ráða eftirlitsmann í flugleiðsögudeild á mannvirkja- og leiðsögusvið stofnunarinnar.  Starfið snýr að eftirliti með fyrirtækjum með starfsleyfi til flugleiðsöguþjónustu en til flugleiðsögu teljast flugumferðar-, fjarskipta-, leiðsögu- og kögunarþjónusta, veðurþjónustu fyrir flug og upplýsingaþjónusta flugmála. Í starfinu felst framkvæmd úttekta og skoðana, einkum að því er varðar fjarskipta-, leiðsögu og kögunarþjónustu.  Starfshlutfall er 100%. 

Menntunar- og hæfnikröfur
Krafist er háskólamenntunar sem nýtist í starfi eða viðeigandi tæknimenntunar.
Menntun og/eða reynsla af flugtengdri starfsemi er æskileg, svo sem af flugleiðsögu, flugrekstri eða flugkerfum.
Þekking á gæða- og öryggisstjórnunarkerfum og reynsla á því sviði er kostur.
Þekking á íslenskum og alþjóðlegum kröfum í flugmálum, s.s. flugleiðsögu er æskileg.
Mjög góð tök á ensku er skilyrði sem og gott vald á úrvinnslu og framsetningu upplýsinga.
Frumkvæði, sjálfstæði og fagmennska í starfi ásamt skipulagningu og ögun í verkum sínum.  

Í boði er spennandi starf hjá metnaðarfullri stofnun í alþjóðlegu umhverfi. Við bjóðum uppá góða starfsaðstöðu og frábæra vinnufélaga. 

Umsóknarfrestur er til 26. nóvember 2018. 

Hægt er að sækja um starfið rafrænt á www.samgongustofa.is/storf

Nánari upplýsingar um starfið veitir Hlín Hólm deildarstjóri flugleiðsögudeildar í síma 480-6000. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í a.m.k. sex mánuði ef staða losnar á ný. Starfskjör eru í samræmi við kjarasamning ríkisins  og viðkomandi stéttarfélags. Samgöngustofa áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Samgöngustofa hvetur jafnt konur sem karla til að sækja um þessa stöðu.

Hjá Samgöngustofu hlakka um 150 öflugir starfsmenn til þess að þú bætist í hópinn. Lögð er áhersla á jákvæðan og skemmtilegan starfsanda, frumkvæði og þátttöku, auk þess sem mötuneytið er frægt fyrir frábæran mat. Samgöngustofa er stjórnsýslustofnun samgöngumála sem annast eftirlit með flugi, siglingum og umferð. Á hverjum degi erum við að læra hvert af öðru og sinna viðskiptavinum af kostgæfni með það að markmiði að verða betri og betri. Frekari upplýsingar um Samgöngustofu er að finna á vef stofnunarinnar www.samgongustofa.is


Samgöngustofa
www.samgongustofa.is 
Ármúli 2 – 108 Reykjavík
Sími: 480-6000

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum