Hoppa yfir valmynd
3. maí 2019

Sérkennari á starfsbraut

Sérkennari á starfsbraut

Fjölbrautaskólinn í Garðabæ óskar eftir að ráða sérkennara á starfsbraut (sérnámsbraut). Um framtíðarstarf er að ræða.

Helstu verkefni og ábyrgð
Leitað er að vel menntuðum og áhugasömum kennara.Sérstaklega er sóst eftir kennara sem sýnir frumkvæði í starfi, góða samskiptahæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum. 

Hæfnikröfur
Umsækjandi þarf að hafa próf í sérkennslufræðum ásamt fullum réttindum á framhaldsskólastigi. 
Góð samskipta- og skipulagshæfni er mikilvæg ásamt áhuga á að starfa í öflugu skólasamfélagi.

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt í gegnum Starfatorg (www.starfatorg.is) með tilheyrandi fylgigögnum, s.s. leyfisbréfi, ferilskrá, sakavottorði, prófskírteinum og öðrum upplýsingum sem umsækjanda þykir skipta máli.
Við ráðningu verður miðað við, að sá er starfið hlýtur falli sem best að aðstæðum og þörfum skólans.
Við ráðningar í störf við Fjölbrautaskólann í Garðabæ er tekið mið af jafnréttisstefnu skólans.

Upplýsingar um skólann má finna á heimasíðu hans.

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 31.05.2019

Nánari upplýsingar veitir
Kristinn Þorsteinsson - [email protected] - 5201600
Hrafnhildur Ragnarsdóttir - [email protected] - 5201600


Starfsbraut
Skólabraut
210 Garðabær


Smelltu hér til að sækja um starfið
 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum