Hoppa yfir valmynd
5. júlí 2018 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Styrkir vegna menningarsamstarfs við Rúmeníu

Stjórnvöld í Rúmeníu veita ferðastyrki úr Uppbyggingarsjóði EES til íslenskra þátttakenda sem óska eftir samvinnu við Rúmena á sviði menningarverkefna eða á sviði menningararfs. Þá er einnig kallað eftir umsóknum um þátttöku á tengslaráðstefnu um menningarverkefni sem haldin verður í Rúmeníu 12.-13. september nk.

Á vef Uppbyggingarsjóðs EES (EEA Grants) má finna nánari upplýsingar um sjóðinn og starfsemi hans. Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í verkefnum með styrkþegaríkjum sjóðsins geta fylgst með á heimasíðu hans. Reglan er að aðilar í styrkþegaríki sækja um styrki til verkefna og því er mikilvægt fyrir íslenska aðila sem vilja taka þátt í samstarfi af þessu tagi að koma sér upp samstarfsaðilum í styrkþegaríkjunum. Upplýsingar um menningarverkefni eru einnig á vef Norsk kulturråd (EøS Midlene) og Riksantikvaren í Noregi.

Umsóknir um ferðastyrki sendist á netfangið: [email protected]

Upplýsingar um tenglaráðstefnu um menningarverkefni má finna hér
Umsóknartímabil er frá 2. júlí til 9. nóvember 2018. Nánari upplýsingar um styrkina má finna á heimasíðu Rannís.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum