Hoppa yfir valmynd
7. febrúar 2019

Lektor í japönskum fræðum

Lektor í japönskum fræðum - Mála- og menningardeild – Hugvísindasvið Háskóla Íslands

Laust er til umsóknar fullt starf lektors í japönskum fræðum við Mála- og menningardeild Hugvísindasviðs Háskóla Íslands. 

Starfssvið
Kennsla í japanskri nútímasögu, stjórnmál og samfélag.
Rannsóknir á sviði japanskra fræða. 
Stjórnun tengd kennslu í japönskum fræðum.

Hæfniskröfur
Doktorspróf í japönskum fræðum.
Rannsóknavirkni og staðgóð þekking á fræðasviðinu, sjálfstæði og frumkvæði í rannsóknum.
Reynsla af háskólakennslu æskileg.
Góð samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum.
Góð kunnátta í ritaðri og talaðri íslensku er æskileg.
Æskilegt er að umsækjandi hafi þekkingu á samskiptum Íslands og Japans.

Við ráðningu verður miðað við að sá er starfið hlýtur falli sem best að aðstæðum og þörfum deildar og fræðasviðs.

Umsóknarferli
Ráðið verður í starfið frá 1. júlí 2019 tímabundið til fimm ára. Verði áframhaldandi fjárhagslegar forsendur fyrir starfinu er möguleiki á ótímabundinni ráðningu, sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009. 

Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni
feril- og ritaskrá,
vottorð um námsferil sinn,
skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið,
greinargerð um áform á sviði rannsókna og kennslu ef til ráðningar kemur.

Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn, eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. Enn fremur er ætlast til þess að umsækjendur láti fylgja með umsagnir um kennslu- og stjórnunarstörf sín, eftir því sem við á.

Umsókn og umsóknargögn sem ekki er skilað rafrænt skal skila í tvíriti til vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík. 

Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga um opinbera háskóla nr. 85/2008 og reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.

Umsóknarfrestur er til og með 11. mars 2019.

Sótt er um starfið á vefsíðu Háskóla Íslands undir laus störf. 

Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga um opinbera háskóla nr. 85/2008 og reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.

Öllum umsækjendum verður svarað og þeim tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin.

Umsóknir geta gilt í allt að 6 mánuði frá lokum umsóknarfrests. 

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags háskólakennara og fjármálaráðherra.

Nánari upplýsingar um starfið Oddný G. Sverrisdóttir í síma 525 43584717, netfang [email protected], og Óskar Einarsson í síma 525 5236, netfang [email protected].

Innan Háskólans eru fimm fræðasvið og deildir skólans eru 25 talsins. Háskóli Íslands býður fjölbreytt nám á öllum stigum og er eini háskóli landsins sem býður grunnnám og framhaldsnám á öllum helstu fræðasviðum. Jafnframt er Háskóli Íslands öflugur rannsóknaháskóli á alþjóðlega vísu og hafa vísindamenn Háskólans hlotið fjölmargar alþjóðlegar viðurkenningar fyrir vísindastörf sín.

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans.

Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum