Hoppa yfir valmynd
21. desember 2019

Yfirlæknir meltingarlækninga

Yfirlæknir meltingarlækninga á Landspítala

Starfið auglýst 21. desember 2019. Umsóknarfrestur framlengdur til og með 3. febrúar 2020. 

Laus er til umsóknar staða yfirlæknis meltingarlækninga á Landspítala. Yfirlæknir hefur þríþætta ábyrgð; faglega ábyrgð, starfsmannaábyrgð og rekstrarábyrgð. Auk þess gegnir yfirlæknir mikilvægu hlutverki í skipulagningu, þróun, kennslu og uppbyggingu vísindastarfs innan sérgreinarinnar. Meltingarlækningar tilheyra lyflækninga- og endurhæfingarkjarna á meðferðarsviði. Næsti yfirmaður er forstöðumaður þjónustukjarnans.

Leitað er eftir sérfræðilækni, leiðtoga með víðtæka reynslu og hæfni til að vera í forystu fyrir þjónustu við sjúklinga, umbótastarf, öryggismál og uppbyggingu mannauðs í nánu samstarfi við forstöðumann og framkvæmdastjóra. Gerð er krafa um helgun í starfi yfirlæknis. 
Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. mars 2020 eða eftir nánara samkomulagi. Ráðið er í starfið til 5 ára, sbr. 9.gr. laga nr. 40/2007 og stefnu Landspítala í ráðningum stjórnenda.

Helstu verkefni og ábyrgð
Yfirlæknir meltingarlækninga hefur þríþætta ábyrgð sem stjórnandi:
» Faglega ábyrgð á uppbyggingu, skipulagi og þróun meltingarlækninga þ.m.t. kennslu og vísindastarf í samráði við forstöðumann, framkvæmdastjóra meðferðarsviðs og framkvæmdastjóra lækninga
» Fjárhagsleg ábyrgð, þ.e. ábyrgð á rekstri einingarinnar í samráði forstöðumann og framkvæmdastjóra
» Starfsmannaábyrgð, þ.e. ábyrgð á uppbyggingu mannauðs og daglegri stjórnun starfsmanna á einingunni í samráði við forstöðumann og framkvæmdastjóra 

Hæfnikröfur
» Leiðtogahæfni og geta til að leiða umbótastarf 
» Farsæl stjórnunarreynsla 
» Reynsla af kennslu og vísindastörfum og sýn til framtíðar á þeim sviðum
» Jákvætt viðmót og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
» Frumkvæði og metnaður til að ná árangri
» Íslenskt sérfræðileyfi í lyflækningum með meltingarlækningar sem undirsérgrein

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. grein 3.2.4 í kjarasamningi lækna og ríkisins 2015. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. 

Umsókn skulu fylgja vottfestar upplýsingar um nám, fyrri störf, reynslu af kennslu, vísindavinnu og stjórnunarstörfum ásamt sérprentun eða ljósriti af greinum sem umsækjandi kann að hafa birt eða skrifað.
Umsókn fylgi einnig kynningarbréf með framtíðarsýn umsækjenda varðandi starfið og sérgreinina auk rökstuðnings fyrir hæfni.

Allar umsóknir eru sendar til stöðunefndar lækna hjá Landlæknisembættinu. Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið einnig á þeim auk mati stöðunefndar á innsendum umsóknargögnum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem hátt í 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.

ATH. Fylla þarf út lágmarksupplýsingar á almenna umsókn og senda sem viðhengi, en ýtarlegri upplýsingar í umsókn fyrir læknisstöðu, sjá slóð hér fyrir neðan.

Umsókn um læknisstöðu - umsóknareyðublað Embættis landlæknis

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 03.02.2020

Nánari upplýsingar veitir
Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir - [email protected] - 543 2270
Runólfur Pálsson - [email protected] - 543 6461


Landspítali
Skrifstofa meðferðarsviðs
Fossvogur
108 Reykjavík


Smelltu hér til að sækja um starfið
 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum