Hoppa yfir valmynd
14. maí 2019

Varðstjórar

Varðstjórar, fimm stöður – embætti ríkislögreglustjóra
 
Við embætti ríkislögreglustjóra eru lausar til umsóknar fimm stöður varðstjóra í nýrri deild sem mun annast öryggisgæslu. Starfsstöð er á höfuðborgarsvæðinu. Ríkislögreglustjóri setur í stöðurnar til sex mánaða frá og með 1. september 2019 með skipun í huga. Um er að ræða sólarhringsvaktir.
 
Hæfnikröfur: Til þess að hljóta skipun í starf varðstjóra skal umsækjandi hafa starfað sem lögreglumaður í að minnsta kosti 2 ár frá því hann lauk prófi frá Lögregluskóla ríkisins eða diplómaprófi í lögreglufræðum sem jafngildir a.m.k. 120 stöðluðum námseiningum, þ.m.t. starfsnámi á vegum lögreglunnar. Nauðsynlegt er að viðkomandi búi yfir skipulagshæfni og vandvirkni í vinnubrögðum, sýni frumkvæði og sjálfstæði í starfi og hafi yfir að búa þjónustulund færni í mannlegum samskiptum og hæfni til að starfa í hóp. Tölvufærni ásamt tungumálakunnáttu er kostur. 
 
Umsóknum skal skilað á netfangið [email protected]  eða til embættis ríkislögreglustjóra, Skúlagötu 21, 101 Reykjavík, en umsóknarfrestur er til og með 3. júní 2019.  Guðmundur Ómar Þráinsson aðstoðaryfirlögregluþjónn veitir nánari upplýsingar um starfið í síma 444-2500.
 
Ráðningakjör eru skv. kjarasamningi Landssambands lögreglumanna og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs. Starfshlutfall er 100%. Starfið er vaktavinna. Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina.  Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin. 
 
Umsóknum skal skilað á sérstökum eyðublöðum sem hægt er að nálgast á lögregluvefnum, www.logreglan.is undir liðnum „eyðublöð“.


Reykjavík, 14. maí 2019
Ríkislögreglustjóri

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum