Hoppa yfir valmynd
17. janúar 2019

Sérfræðingur á skrifstofu matvæla og landbúnaðar


Sérfræðingur – atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið - Reykjavík

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið auglýsir starf sérfræðings á skrifstofu matvæla og landbúnaðar laust til umsóknar. Skrifstofan fer með mál á sviði landbúnaðar, matvælaframleiðslu og matvælaöryggis, fæðuöryggis, dýra- og plöntusjúkdóma, inn- og útflutning afurða og tollamála.

Helstu verkefni og ábyrgð:
Fjölbreytt og krefjandi verkefni á sviði matvæla og landbúnaðar.
Greiningar og hagtölur.
Umsjón með sértækum verkefnum.
Þátttaka í vinnuhópum og nefndum.

Menntunar- og hæfniskröfur:
Meistarapróf á sviði hagfræði eða sambærilegu sviði.
Reynsla af tölfræðigreiningum og gagnavinnslu er skilyrði.
Greinandi, gagnrýnin og lausnamiðuð hugsun.
Frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt, sem og í hóp.
Góð hæfni í samskiptum og skipulagshæfileikar.
Þekking á landbúnaði og eða matvælaframleiðslu kostur.
Góð íslenskukunnátta og hæfni í framsetningu upplýsinga.
Mjög gott vald  á ensku.

Frekari upplýsingar um starfið
Laun greiðast samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólamenntaðra starfsmanna stjórnarráðs hafa gert. Um er að ræða fullt starf á krefjandi og góðum vinnustað þar sem reynir á vönduð vinnubrögð, ábyrgð og sjálfstæði. 

Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst. Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem umsækjandi gerir grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu. Umsóknir skulu sendar til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, Skúlagötu 4, 101 Reykjavík eða á netfangið [email protected]. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum, með síðari breytingum.

Umsóknarfrestur er til og með 4 febrúar n.k. 

Nánari upplýsingar um starfið veitir Stefán Ásmundsson, skrifstofustjóri ([email protected]).


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum