Starfsmaður í þjónustudeild - Neskaupstaður - ræstingar
Starfsmaður í þjónustudeild - Neskaupstaður - ræstingar
Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða starfsmann í ræstingar hjá þjónustudeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands. Starfshlutfall er 90-100% eða samkvæmt samkomulagi. Staðan er laus strax.
Helstu verkefni og ábyrgð
Vinna við ræstingar í þjónustudeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands.
Hæfnikröfur
Lögð er áhersla á metnað í starfi, stundvísi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og AFL Starfsgreinafélag hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf.
Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar.
Tóbaksnotkun/notkun rafretta er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.
HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Vopnafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað. Á þjónustusvæði HSA eru auk þess fimm heilsugæslustöðvar, en alls eru starfsstöðvarnar ellefu talsins.
HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 27.01.2021
Nánari upplýsingar veitir
Eva Mjöll Þorfinnsdóttir -
[email protected]
-
470-1482 & 776-2443
Emil Sigurjónsson -
[email protected]
-
470-3053 & 895-2488