Ljósmóðir - Fjöldskyldudeild HSA - SUMARAFLEYSING 2021
Ljósmóðir - Fjöldskyldudeild HSA - SUMARAFLEYSING 2021
Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar að ráða ljósmóður í sumarafleysingu. Staðan veitist frá og með 1. júní - 31. ágúst. Um er að ræða 100% stöðu eða skv. samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Afleysing í fæðingarþjónustu og sængurlegu við sjúkrahúsið í Neskaupstað og mæðravernd á svæðinu.
Hæfnikröfur
Íslensk starfsréttindi ljósmóður. Sónarkunnátta er kostur, en ekki nauðsyn. Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Ljósmæðrafélag Íslands hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf.
Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar.
Tóbaksnotkun/Vape er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.
HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Vopnafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað. Á þjónustusvæði HSA eru auk þess fimm heilsugæslustöðvar, en alls eru starfsstöðvarnar ellefu talsins.
HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 05.03.2021
Nánari upplýsingar veitir
Oddný Ösp Gísladóttir -
[email protected]
-
470-1459 & 899-4301
Eva Mjöll Þorfinnsdóttir -
[email protected]
-
470-1482 & 776-2443