Vélamaður á þjónustustöð á Vopnafirði, Þórshöfn
Vélamaður á þjónustustöð á Vopnafirði, Þórshöfn
Laust er starf vélamanns á starfsstöð Vegagerðarinnar á Vopnafirði.
Helstu verkefni og ábyrgð
Almenn dagleg þjónusta á vegakerfinu á starfssvæði Vegagerðarinnar á Vopnafirði og Þórshöfn Viðhald á t.d. vegstikum, umferðamerkjum og öðrum vegbúnaði. Ýmis vinna í starfsstöð á Vopnafirði
Hæfnikröfur
Almenn menntun Vinnuvélaréttindi og meirapróf bifreiðastjóra er kostur Góð tölvukunnátta Reynsla af sambærilegum störfum æskileg Hæfni í mannlegum samskiptum Frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í hóp Góð kunnátta í íslensku
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður. Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Í umsókninni komi fram persónulegar upplýsingar ásamt þeim hæfnikröfum sem óskað er eftir. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 04.03.2021
Nánari upplýsingar veitir
Björn H Sigurbjörnsson - [email protected] - 5221000