Sumarafleysingar 2021 - Sjúkraliði/almennur starfsmanður - Öldrunardeildin á Hvammstanga
Sumarafleysingar 2021 - Sjúkraliði/almennur starfsmanður - Öldrunardeildin á Hvammstanga
Heilbrigðisstofnun Vesturlands (HVE) á Hvammstanga óskar eftir að ráða starfsmenn í sumarafleysingar við umönnun á öldrunardeildina. Öldrunardeildin á Hvammstanga er ætluð fyrir einstaklinga í hjúkrunar- og hvíldarrýmum.
Helstu verkefni og ábyrgð
Viðkomandi vinnur undir stjórn hjúkrunarfræðings og eftir gildandi lögum og reglugerðum og starfsreglum stofnunar. Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni við umönnun skjólstæðinga á öldrunardeildinni.
Hæfnikröfur
Jákvæðni og góð samskiptahæfni Snyrtimennska og stundvísi. Góð íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Með umsókn skal fylgja prófskirteini og ferilskrá.
Staðfest afrit af starfsleyfi ef umsækjandi er sjúkraliði.
Afrit af námi/námskeiðum sem nýtast í starfi.
Sótt er um á www.hve.is eða www.starfatorg.is.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Starfshlutfall er 60-100%
Umsóknarfrestur er til og með 01.03.2021
Nánari upplýsingar veitir
Auður Einarsdóttir - [email protected] - 432-1310