Ljósmóðir Heilsugæslan Mosfellsumdæmis
Ljósmóðir Heilsugæslan Mosfellsumdæmis
Heilsugæslan Mosfellsumdæmis auglýsir eftir ljósmóður til starfa. Um er að ræða ótímabundið 30% starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf frá 1.maí næstkomandi eða eftir nánara samkomulagi.
Á heilsugæslustöðinni eru starfandi sérfræðingar í heimilislækningum, hjúkrunarfræðingar, ljósmæður, sálfræðingur, hreyfistjóri og ritarar. Heilsugæslunni er ætlað að veita íbúum almenna, samfellda og aðgengilega heilbrigðisþjónustu. Starfsemi heilsugæslunnar er í örri framþróun þar sem áhersla er lögð á náið samstarf fagstétta og teymisvinnu. Heilsugæslan er fyrsti viðkomustaður í heilbrigðisþjónustu þar sem ólíkum þörfum notenda er mætt í nærumhverfi og þeim leiðbeint yfir í önnur kerfi heilbrigðisþjónustunnar eftir því sem þörf er á. Mikil þróunarvinna er í gangi og stöðugt er unnið að því að bæta þjónustu við skjólstæðinga.
Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfið felst aðallega í mæðravernd. Mæðravernd er í höndum ljósmæðra og heimilislækna á heilsugæslustöðvum og samráð er haft við fæðingarlækna ef þörf er á. Markmið með mæðravernd heilsugæslunnar er m.a. að stuðla að heilbrigði móður og barns, veita stuðning og ráðgjöf, greina áhættuþætti og veita fræðslu um meðgöngu og fæðingu.
Hæfniskröfur
- Íslenskt hjúkrunarleyfi skilyrði
- Starfsleyfi sem ljósmóðir
- Reynsla af vinnu á fæðingardeild og/eða meðgöngudeild kostur
- Reynsla sem ljósmóðir á heilsugæslustöð æskileg
- Reynsla við að nota rafræna mæðraskrá
- Góð þekking/próf í brjóstagjafaráðgjöf
- Hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
- Sjálfstæði í starfi - Góð íslenskukunnátta skilyrði
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Ljósmæðrafélag Íslands hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi. Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Starfshlutfall er 30%
Umsóknarfrestur er til og með 19.04.2021
Nánari upplýsingar veitir
Dagný Hængsdóttir - [email protected] - 513-6050