Yfirlæknir svæfinga- og gjörgæslulækninga á Landspítala
Yfirlæknir svæfinga- og gjörgæslulækninga á Landspítala
Við fyrirhugaða sameiningu svæfinga- og gjörgæslulækninga í Fossvogi og við Hringbraut er laus til umsóknar staða yfirlæknis yfir sameinaðri sérgrein svæfinga- og gjörgæslulækninga á Landspítala.
Við leitum eftir öflugum leiðtoga með faglega hæfni og færsæla reynslu af því að byggja upp og leiða mannauð. Yfirlæknir fer með forystu fyrir þjónustu við sjúklinga, þróun faglegrar þjónustu, umbreytingarstarfi og gæða- og öryggismálum. Yfirlæknir starfar í nánu samstarfi við forstöðumann kjarna, framkvæmdastjóra sviðs og er þátttakandi í stjórnendateymi aðgerðarsviðs. Hann stuðlar að teymisvinnu innan deildar og við aðra stjórnendur og samstarfsaðila. Næsti yfirmaður er forstöðumaður skurðstofu- og gjörgæslukjarna.
Yfirlæknir hefur þríþætta ábyrgð stjórnanda, þ.e. faglega ábyrgð, ábyrgð á mannauði og rekstrarábyrgð. Auk þess gegnir yfirlæknir mikilvægu hlutverki í kennslumálum og uppbyggingu vísindastarfs. Gerð er krafa um helgun í starfi yfirlæknis. Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. september 2021 eða eftir samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Fagleg ábyrgð á svæfinga- og gjörgæslulækningum á Landspítala
- Fjárhagsleg ábyrgð, þ.e. ábyrgð á rekstri og áætlanagerð einingar
- Starfsmannaábyrgð, þ.e. ábyrgð á uppbyggingu mannauðs og daglegri stjórnun
- Hefur forystu um áframhaldandi uppbyggingu, skipulag og þróun svæfinga- og gjörgæslulækninga á Landspítala inn í nýjan meðferðarkjarna
Hæfniskröfur
- Íslenskt sérfræðileyfi í svæfinga- og gjörgæslulækningum
- Viðbótarnám í svæfinga- og gjörgæslulækningum
- Víðtæk reynsla í svæfinga- og gjörgæslulækningum
- Farsæl reynsla af uppbyggingu og stýringu mannauðs er skilyrði
- Leiðtogahæfileikar og áhugi og vilji til að takast á við breytingar
- Mjög góð hæfni í samskiptum og jákvætt viðmót
- Mjög góð hæfni til að leiða teymi
- Frumkvæði og metnaður til að ná árangri
- Reynsla af kennslu og vísindastörfum
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. grein 3.2.4 í gildandi kjarasamningi lækna og ríkisins.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
» Fyrri störf, menntun og hæfni
» Félagsstörf og umsagnaraðila
Nauðsynleg fylgiskjöl:
» Vottað afrit af prófskírteinum
» Afrit af lækninga- og sérfræðileyfum sem og vottuð afrit af erlendum leyfum (ef við á)
» Staðfesting á læknis-, stjórnunar- og kennslustörfum
» Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af læknis-, kennslu-, vísinda- og stjórnunarstörfum
» Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed
» Afrit af umsókn um læknisstöðu hjá Embætti Landlæknis skal fylgja með umsókn. Umsækjandi sækir skjalið hér og vistar, fyllir það út og sendir með umsókn.
» Kynningarbréf með framtíðarsýn umsækjenda varðandi starfið og sérgreinina auk rökstuðnings fyrir hæfni
Allar umsóknir eru sendar til stöðunefndar lækna skv. 36. gr. laga um heilbrigðisþjónustu, sem hefur aðsetur hjá Embætti landlæknis.
Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið einnig á þeim auk mati stöðunefndar á innsendum umsóknargögnum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Sérfræðilæknir, yfirlæknir, læknir
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 30.04.2021
Nánari upplýsingar veitir
Ólafur Guðbjörn Skúlason -
[email protected]
-
824 5118
Elfa Hrönn Guðmundsdóttir -
[email protected]
-
691 7823
Ath. fylla skal út umsókn um læknisstöðu hér hjá Embætti landlæknis