Skurðhjúkrunarfræðingur - Hjúkrunarfræðingur - Skurðstofur Hringbraut
Skurðhjúkrunarfræðingur - Hjúkrunarfræðingur - Skurðstofur Hringbraut
Við leitum eftir skurðhjúkrunarfræðingum til starfa á skurðstofur við Hringbraut. Einnig kemur til greina að ráða inn hjúkrunarfræðinga sem hafa áhuga á að sækja sér viðbótarmenntun í skurðhjúkrun. Í boði eru áhugaverð störf með góðu samstarfsfólki þar sem unnið er á bundnum vöktum auk bakvakta samkvæmt vaktskipulagi deildar eftir að þjálfun lýkur. Störfin eru laus í maí 2021 eða eftir nánari samkomulagi.
Á deildinni eru 11 skurðstofur sem þjóna 7 sérgreinum og árlega eru framkvæmdar þar um 10 þúsund aðgerðir. Á deildinni starfa um 90 manns, hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar, sótthreinsitæknar, skrifstofumenn og sérhæfðir starfsmenn við fjölbreytt og krefjandi verkefni, sem unnin eru í nánu samstarfi við fagfólk í öðrum sérgreinum. Gagnreynd þekking, viðurkenndir verkferlar, öryggi sjúklinga og teymisvinna eru höfð í fyrirrúmi. Í boði er einstaklings aðlöguð þjálfun eftir þörfum hvers og eins á skemmtilegum vinnustað.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Einstaklingshæfð hjúkrun við undirbúning, framkvæmd og skil í skurðaðgerðum samkvæmt skipulagi deildar
- Ákveður, skráir og veitir hjúkrunarmeðferð í samráði við þarfir skjólstæðinga
- Ber ábyrgð á meðferð, samkvæmt starfslýsingu og vinnureglum deildar
- Þátttaka í teymisvinnu og umbótastarfi deildar
Hæfniskröfur
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Sérnám í skurðhjúkrun er kostur
- Faglegur metnaður
- Góð samskiptahæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
- Sveigjanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Áhugi og hæfni til að takast á við breytingar og færni í teymisvinnu
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og viðtölum. Öllum umsóknum verður svarað.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem rúmlega 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, sérfræðingur í hjúkrun, sérfræðingur í skurðhjúkrun, skurðhjúkrunarfræðingur
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 27.04.2021
Nánari upplýsingar veitir
Helga Guðrún Hallgrímsdóttir -
[email protected]
-
824 0760
Elfa Hrönn Guðmundsdóttir -
[email protected]
-
691 7823