Nýútskrifaðir hjúkrunarfræðingar á starfsþróunarár Landspítala 2022-2023
Nýútskrifaðir hjúkrunarfræðingar á starfsþróunarár Landspítala 2022-2023
Hefur þú áhuga á virkri starfsþróun á fyrsta árinu þínu í starfi? Værir þú til í stuðning við að fóta þig sem nýútskrifaður hjúkrunarfræðingur? Langar þig að kynnast öðrum sem eru í sömu sporum og þú?
Landspítali býður nýútskrifuðum hjúkrunarfræðingum sem ráða sig til starfa að taka þátt í starfsþróunarári hjúkrunar á Landspítala. Samhliða hjúkrunarstarfinu er boðið upp á skipulagða aðlögun, starfsþróun, hæfniviðmið, stuðning í starfi og ráðgjöf. Vinnusmiðjur, umræðufundir, hermiþjálfun og fyrirlestrar eru á dagskrá yfir veturinn.
Menntadeild Landspítala skipuleggur starfsþróunarárið með hliðsjón af stöðlum frá American Association of Colleges of Nursing.
Markmið starfsþróunarárs
- Auka öryggi nýútskrifaðra hjúkrunarfræðinga í starfi
- Auka hæfni til að takast á við áskoranir starfsins
- Stuðla að auknum gæðum hjúkrunar og öryggi sjúklinga
- Auka starfsánægju og festu í starfi
- Efla faglegar áherslur og fjölbreytni í hjúkrun
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ákveða, skipuleggja og veita hjúkrunarmeðferð í samráði við skjólstæðinga
- Bera ábyrgð á meðferð samkvæmt starfslýsingu
Hæfniskröfur
- Hafa lokið námi í hjúkrunarfræði sem veitir starfsréttindi sem hjúkrunarfræðingur á Íslandi
- Íslenskt hjúkrunarleyfi eigi síðar en október 2022
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Frá september 2022 til apríl 2023 munu að jafnaði tveir dagar í mánuði vera helgaðir starfsþróun.
Þeir sem þegar hafa ráðið sig til starfa geta, í samráði við deildarstjóra, skráð sig á starfsþróunarár hjá menntadeild [email protected] eða [email protected]
Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, hjúkrun
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 15.06.2022
Nánari upplýsingar veitir
Jóhanna Lind Guðmundsdóttir
-
[email protected]
-
543 7702
Kristín Salín Þórhallsdóttir
-
[email protected]
-
543 1473