Iðjuþjálfi á Geðheilsumiðstöð barna HH
Iðjuþjálfi á Geðheilsumiðstöð barna HH
Nýtt ráðgjafar- og meðferðarteymi fyrir börn með geð- og þroskaraskanir og fjölskyldur þeirra auglýsir eftir iðjuþjálfa til starfa. Starfshlutfall er 100% eða eftir nánara samkomulagi. Æskilegt er að viðkomandi getið hafið störf 1. september n.k. Geðheilsumiðstöð barna er miðstöð geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn á landsvísu, staðsett innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Miðstöðin sameinar starfsemi þriggja starfseininga innan heilsugæslunnar; Þroska og hegðunarstöð, Geðheilsuteymi fjölskylduvernd og nýtt meðferðarteymi fyrir börn og unglinga.
Geðheilsumiðstöð barna veitir 2. stigs geðheilbrigðisþjónustu á landsvísu fyrir börn að 18 ára aldri. Áhersla er lögð á fjölskyldumiðaða þjónustu Á miðstöðinni starfar breiður hópur fagfólks sem sinnir greiningum og meðferð. Kennsla og ráðgjöf auk vísindastarfa verður einnig mikilvægur hluti af starfseminni.
Helstu verkefni og ábyrgð
Iðjuþjálfi starfar í þverfaglegu teymi við greiningu og meðferð barna með geð- eða þroskavanda. Fjölskylduvinna er einn lykilþátta starfsins. Iðjuþjálfi tekur virkan þátt í umbótastarfi og þróun þjónustu. Iðjuþjálfi sinnir ennfremur einstaklingsmiðaðri iðjuþjálfun og fræðslu og stuðningi við börn og fjölskyldur þeirra.
Hæfniskröfur
- Íslenskt starfsleyfi í iðjuþjálfun
- Þekking og reynsla af vinnu með börnum og fjölskyldum þeirra
- Þekking á taugaþroska- og geðheilbrigðisvanda barna og unglinga
- Faglegur metnaður, sjálfstæði í starfi, frumkvæði og öguð vinnubrögð
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum og áhugi og vilji til að starfa í þverfaglegu teymi
- Góð íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Iðjuþjálfafélag Íslands hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá. Jafnframt skal leggja fram leyfisbréf og staðfestar upplýsingar um menntun ásamt hreinu sakavottorði. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 07.06.2022
Nánari upplýsingar veitir
Linda Kristmundsdóttir - [email protected] - 513-6620