Fjölbrautaskólinn við Ármúla auglýsir eftir kennara í kvikmyndagreinum
Fjölbrautaskólinn við Ármúla auglýsir eftir kennara í kvikmyndagreinum
Laus er til umsóknar 75% staða framhaldsskólakennara í kvikmyndagreinum við Fjölbrautaskólann við Ármúla.
Ráðið er í starfið frá 1. ágúst 2022 og laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og KÍ hafa gert og nánari útfærslu í stofnanasamning skólans.
Helstu verkefni og ábyrgð
Kennari í kvikmyndagreinum kennir og undirbýr kennslu, hefur faglegt samstarf og metur nám í kennslugrein sinni samkvæmt markmiðum aðal- og skólanámskrár, gerir námsáætlun, viðheldur faglegri hæfni sinni og hugar að tengslum við aðrar námsgreinar. Tekur þátt í samráði vegna starfs síns, ber ábyrgð á almennri upplýsingagjöf, situr kennarafundi og vinnur önnur störf sem honum eru falin og samrýmast gildandi kjarasamningum, lögum og reglugerðum.
Hæfniskröfur
Umsækjendur hafi lokið menntun í kvikmyndagerð og öðlast réttindi til að nota starfsheitið kennari. Umsækjendur hafi góða þekkingu og reynslu af notkun upplýsingatækni í starfi, hæfni til að vinna sjálfstætt, mikla samskipta- og skipulagshæfni og áhuga á kennslu og störfum með ungu fólki. Reynsla af kennslu í framhaldsskólum er kostur.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.
Í umsókn þurfa að koma fram upplýsingar um menntun (staðfest afrit af prófskírteinum), afrit af leyfisbrefi til að nota starfsheitið kennari, upplýsingar um fyrri störf og meðmælendur. Kynningarbréf er æskilegt. Umsóknum skal skila rafrænt í gegnum Starfatorg (www.starfatorg.is).
Vakin er athygli umsækjenda á að áður en að ráðningu kemur þarf að liggja fyrir hreint sakavottorð.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Starfshlutfall er 75%
Umsóknarfrestur er til og með 27.05.2022
Nánari upplýsingar veitir
Magnús Ingvason, skólameistari
-
[email protected]
Kristrún Birgisdóttir, aðstoðarskólameistari
-
[email protected]