Verkefnastjóri við uppbyggingu háskólanáms á Austurlandi
Verkefnastjóri við uppbyggingu háskólanáms á Austurlandi
Laus er til umsóknar staða verkefnastjóra iðn- og tæknifræðikennslu á Austurlandi. Leitað er að einstaklingi með háskólamenntun í verk-, iðn- eða tæknifræði ásamt haldgóðri þekkingu á verkefnastjórnun. Sérstök áhersla er lögð á samskiptahæfni og frumkvæði þar sem viðkomandi þarf að vinna með fjölbreyttum hópi innan beggja háskólanna.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að veita forystu samstarfi HR /HA um nám á Austurlandi..
- Umsjón með nemendahóp HR/HA sem stundar nám í Háskólagrunni HR á Austurlandi.
- Kennsla í verkefna- og dæmatímum.
- Verkefni er tengjast uppbyggingu náms í iðn- og tæknifræði við HR/HA á Austurlandi
Hæfniskröfur
- Háskólamenntun á sviði verk-, iðn- eða tæknifræði.
- Reynsla af kennslu æskileg.
- Frumkvæði og góð samskiptahæfni.
- Skipulags- og stjórnunarhæfni.
Helstu fylgigögn með umsókn eru:
- Greinargóð skýrsla um náms- og starfsferil, fræðistörf og kennslureynslu.
- Kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið.
- Staðfest afrit af öllum viðeigandi prófskírteinum.
- Umsagnir um kennslu- og stjórnunarstörf umsækjanda eftir því sem við á.
- Tilnefna skal tvo meðmælendur, æskilegt er að annar þeirra sé næsti yfirmaður í núverandi starfi eða fyrra starfi umsækjanda.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara á Akureyri hafa gert.
Verkefnastjórinn mun sinna samstarfi Háskólans í Reykjavík og Háskólans á Akureyri um kennslu í Háskólagrunni HR á Austurlandi. Í því felst skipulag kennslu í samstarfi við frumgreinadeild HR, kennsla í verkefna- og dæmatímum ásamt áframhaldandi uppbyggingu á samstarfi HA og HR á Austurlandi.
Um er að ræða ráðningu til árs með möguleika á framlengingu í allt að tveggja ára ráðningu. Ráðið er í stöðuna frá og með 1. júlí 2022 eða skv. samkomulagi. Næsti yfirmaður er forseti Viðskipta- og raunvísindasviðs HA. Starfsstöð verkefnastjóra er á Reyðarfirði.
Ófullnægjandi umsóknir eru ekki teknar til greina og áskilja háskólarnir sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu í starfið hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Nánari upplýsingar um starfið veita Jóna Árný Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Austurbrúar, [email protected], símanúmer 4703800 og Ólafur Jónsson, verkefnastjóri, [email protected], símanúmer 4608097.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 23.05.2022
Nánari upplýsingar veitir
Ólafur Jónsson, Verkefnastjóri - [email protected] - 4608097