Starfsmaður í lyfjabúr HSA-Neskaupstað - afleysing
Starfsmaður í lyfjabúr HSA-Neskaupstað - afleysing
Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða starfsmann í lyfjabúr sjúkrahússins í Neskaupstað í sumarafleysingu ásamt aðstoð á vörulager.
Starfshlutfall er 80-100% eða skv. samkomulagi og upphaf starfstíma er samkomulag.
Helstu verkefni og ábyrgð
Móttaka lyfja, frágangur og afgreiðsla á deildir og heilsugæslur HSA í Fjarðabyggð. Eftirlit og skýrslugerð og önnur störf er til falla.
Hæfniskröfur
Lyfjafræði - og eða lyfjatæknimenntun, reynsla er mikilvæg
Lögð er áhersla á frumkvæði og metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin og önnur tungumálakunnátta kemur sér vel.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag opinberra starfsmanna á Austurlandi hafa gert.
HSA er með samning við Lyfjaver um öflun lyfja og lyfjafræðilega þjónustu. Í lyfjabúrinu er Alfa kerfi og á sjúkradeild Umdæmissjúkrahússins í Neskaupstað er Emed lyfjagjafakerfi. Lyfjafræðingar Lyfjavers eru til taks varðandi upplýsingar og ráð. Húsnæði er í boði og tíminn er samkomulag. Áhugasamir hafi endilega samband um meiri upplýsingar.
Neskaupstaður er hluti af Fjarðabyggð sem er mjög áhugavert svæði sérstaklega til útivistar. Góðar sundlaugar, golfvellir, flottar göngu- og hjólaleiðir, söfn og margt margt fl. Það tekur ca. 1 klst að fljúga til Egilsstaða frá Rvk. og ca. 1 klst að keyra þaðan til Neskaupstaðar, og hér er alltaf gott veður á sumrin
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag opinberra starfsmanna á Austurlandi hafa gert og samkvæmt stofnanasamningi viðkomandi félags við HSA.
Umsóknum skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun/Vape er ekki heimil á vinnutíma innan HSA. HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Vopnafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað. Á þjónustusvæði HSA eru auk þess fimm heilsugæslustöðvar, en alls eru starfsstöðvarnar ellefu talsins. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 23.05.2022
Nánari upplýsingar veitir
Þorgerður Malmquist
-
[email protected]
Svava I Sveinbjörnsdóttir
-
[email protected]