Sjúkraþjálfari - Hefur þú áhuga á að vinna á endurhæfingardeild?
Sjúkraþjálfari - Hefur þú áhuga á að vinna á endurhæfingardeild?
Óskað er eftir sjúkraþjálfara til starfa á endurhæfingardeild Grensás. Um er að ræða tímabundna ráðningu til eins árs. Starfshlutfall er 80-100 % eða eftir samkomulagi.
Viltu vinna með skemmtilegu fólki þar sem þú færð tækifæri til að öðlast breiða þekkingu innan fagsins? Viltu vera hluti af liðsheild sem starfar í krefjandi og skemmtilegu umhverfi? Þá er tækifærið hér!
Á Grensás er 24 rúma sólarhringsdeild og rúmlega 30 einstaklingar á dagdeild auk göngudeildar. Sjúkraþjálfun á Grensási sinnir fjölbreyttri og sérhæfðri endurhæfingu sjúklinga m.a. með skaða í miðtaugakerfi, fjöláverka, aflimanir auk almennrar endurhæfingar. Sjúklingahópurinn er fjölbreyttur og gefst því góð tækifæri til að öðlast fjölþætta reynslu. Lögð er áhersla á fagþróun, rannsóknir og kennslu heilbrigðisstétta og þverfaglegt samstarf.
Fríðindi í starfi eru m.a. samgöngusamningur, styttri vinnuvika o.fl.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skoðun, mat og meðferð
- Skráning og skýrslugerð
- Fræðsla til sjúklinga og aðstandenda
- Þátttaka í þverfaglegum teymum
- Þátttaka í fagþróun
Hæfniskröfur
- Íslenskt starfsleyfi sem sjúkraþjálfari
- Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi
- Hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót
- Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag sjúkraþjálfara hafa gert.
Æskilegt að umsækjandi geti hafið störf í ágúst 2022 eða eftir nánara samkomulagi.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, sjúkraþjálfari
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 06.07.2022
Nánari upplýsingar veitir
Ída Braga Ómarsdóttir - [email protected] - 543 9104