Deildarstjóri óskast til starfa á Sjúkra- og göngudeild HSU í Vestmannaeyjum
Deildarstjóri óskast til starfa á Sjúkra- og göngudeild HSU í Vestmannaeyjum
HSU leitar eftir metnaðarfullum hjúkrunarfræðingi sem vill takast á við spennandi starf sem stjórnandi á Sjúkradeild stofnunarinnar í Vestmannaeyjum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Fagleg forysta um hjúkrun og þjónusta við skjólstæðinga deildarinnar
- Yfirsýn og mótun skipulags sjúkradeildarinnar
- Hjúkrunardeildarstjóri gerir áætlanir um starfsemi á deildinni ásamt öðrum stjórnendum
- Skipuleggur starf hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða og annarra starfsmanna sem undir hann heyra
- Hann tekur þátt í kennslu og þjálfun nemenda og starfsmanna stofnunarinnar og vinnur að framþróun gæðamála, rannsókna og fræðistarfa
- Þátttaka í klínísku starfi
- Þverfagleg teymisvinna innan stofnunarinnar
Hæfniskröfur
- Jákvætt viðhorf og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum auk leiðtogahæfileika
- Brennandi áhugi á þróun þjónust við skjólstæðinga deildarinnar
- Farsæl stjórnunarreynsla æskileg
- Umsækjendur skulu hafa lokið hjúkrunarmenntun frá viðurkenndri menntastofnun og hafa starfsleyfi Landlæknisembættisins
- Framhaldsnám í hjúkrun og/eða stjórnun æskileg
- Hæfni í tjáningu bæði í ræðu og riti
- Frumkvæði, áreiðanleiki, drifkraftur, þrautsegja og árangursmiðað viðhorf nauðsynleg
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
- Umsókn þarf að fylgja staðfestar upplýsingar um menntun og fyrri störf, ásamt afriti af starfsleyfi
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 18.07.2022
Nánari upplýsingar veitir
Sigurður Böðvarsson, Framkvæmdastjóri sjúkrahússviðs
-
[email protected]
-
432-2000
Cecilie B. H. Björgvinsdóttir, Mannauðsstjóri
-
[email protected]
-
432-2002