Starf í býtibúri á bráðamóttöku Landspítala
Starf í býtibúri á bráðamóttöku Landspítala
Við viljum ráða þjónustulundaðan einstakling með ríka samskiptahæfni sem er sjálfstæður í starfi. Starfshlutfall er 60-100%, unnið er á tvískiptum vöktum og er upphaf starfs samkvæmt samkomulagi en æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst. Lágmarksaldur umsækjanda er 20 ár. Gerð er krafa um góða íslenskukunnáttu.
Bráðamóttaka í Fossvogi er opin allan sólarhringinn, alla daga ársins og þangað koma allir sjúklingahópar Landspítala. Á deildinni starfar öflugur hópur reyndra starfsmanna, þar ríkir góður starfsandi sem einkennist af vinnugleði og metnaði. Við tökum vel á móti nýju fólki og veitum góða einstaklingshæfða aðlögun.
Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er nú 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón (þrif og umhirða) með kaffistofum starfsmanna og aðstöðu fyrir aðstandendur
- Sér um ýmis þrif á deild og pantanir og frágangur á vörum og líni skv. starfslýsingu
- Önnur störf í samráði við deildarstjóra
Hæfniskröfur
- Góð samskiptahæfni, þjónustulund og skipulögð vinnubrögð
- Stundvísi, heiðarleiki og fagleg framkoma
- Almenn tölvukunátta
- Íslenskukunnátta er áskilin
- Lágmarksaldur er 20 ár
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Efling stéttarfélag hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Þjónustustörf, þrif, ræstingar, starfsmaður í býtibúr,
Starfshlutfall er 60-100%
Umsóknarfrestur er til og með 07.07.2022
Nánari upplýsingar veitir
Sólveig Wium
-
[email protected]
Hildur Dís Kristjánsdóttir
-
[email protected]