Hjúkrunarfræðingur - Egilsstaðir - Hjúkrunarheimilið Dyngja - Afleysing
Hjúkrunarfræðingur - Egilsstaðir - Hjúkrunarheimilið Dyngja - Afleysing
Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðinga á Hjúkrunarheimilið Dyngju. Starfshlutfall er 80-100% eða samkvæmt samkomulagi. Um tvær afleysingarstöður er að ræða til 1. árs og veitast frá 1. ágúst. HSA er metnaðarfullur vinnustaður þar sem um 420 manns starfa á þrettán starfsstöðvum. Á stofnuninni er unnið markvisst að góðum starfsanda og byggir HSA þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Fagleg vinna hjúkrunarfræðings á hjúkrunarheimili. Þetta er gott tækifæri fyrir þá sem vilja starfa og öðlast fjölbreytta reynslu tengdri hjúkrun
Hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi er skilyrði. Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf. Sé sótt um í opinni starfsumsókn ber að tilgreina við hvað viðkomandi óskar að starfa og hvar. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.
HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar þrettán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 22.08.2022
Nánari upplýsingar veitir
Bríet Magnúsdóttir
-
[email protected]
-
470-3040
Soffía Sigríður Jónasdóttir
-
[email protected]
-
470-3040