Sálfræðingur barna og unglinga - Heilsugæslan Seltjarnarnesi og Vesturbæ
Sálfræðingur barna og unglinga - Heilsugæslan Seltjarnarnesi og Vesturbæ
Heilsugæslan Seltjarnarnesi og Vesturbæ auglýsir eftir barna- og unglingasálfræðingi. Um er að ræða 50% tímabundið starf til eins árs. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Um er að ræða ábyrgðarmikið og krefjandi starf og spennandi vettvang fyrir sálfræðing sem hefur áhuga á að verða þátttakandi í nýsköpun og framþróun í heilsugæslu og geðheilsumálum. Starfsumhverfið er þverfagleg teymisvinna. Í teyminu starfa heimilislæknar, sálfræðingur, hjúkrunarfræðingar og annað fagfólki. Starfsumhverfið er gefandi og hefur góðan sveigjanleika til faglegrar þróunar.
Heilsugæslan á að vera fyrsti viðkomustaður í heilbrigðsiþjónustu þar sem veitt er fyrstu línu þjónusta og geðheilbrigðismál eru í mikilli framþróun innan heilsugæslunnar.
Nánari upplýsingar um starfsemina má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is)
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sálfræðiþjónusta fyrir börn og unglinga að 18 ára aldri
- Mat og greining á vanda barna og unglinga
- Einstaklingsmiðuð gagnreynd meðferðarvinna og sálrænn stuðningur
- Hópmeðferð
- Námskeiðahald, ráðgjöf og fræðsla
- Handleiðsla og þjálfun nema í klínískri sálfræði
- Samstarf og samráð við aðrar stofnanir í heilbrigðis- og félagsþjónustu
- Þátttaka í þróun geð- og sálfræðiþjónustu í heilsugæslu
Hæfniskröfur
- Leyfi frá landlækni til að starfa sem sálfræðingur er skilyrði
- 5 ára starfsreynsla af klínísku starfi er æskileg
- Reynsla af greiningu og meðferð barna og unglinga
- Þekking og reynsla af gagnreyndum sálfræðiaðferðum
- Faglegur metnaður og áhugi á uppbyggingu sálfræðiþjónustu í heilsugæslu
- Sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun í starfi
- Reynsla og áhugi á þverfaglegri teymisvinnu
- Góð samskiptahæfni, lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Góð íslenskukunnátta skilyrði
- Góð tungumálakunnátta vel metin
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sálfræðingafélag Íslands hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdarstjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Starfshlutfall er 50%
Umsóknarfrestur er til og með 15.08.2022
Nánari upplýsingar veitir
Emilía Petra Jóhannsdóttir - [email protected] - 513-6100