Hjúkrunarnemar á 1.- 4. ári - Spennandi hlutastörf með námi á lungnadeild
Hjúkrunarnemar á 1.- 4. ári - Spennandi hlutastörf með námi á lungnadeild
Langar þig í hvetjandi og lærdómsríkt starf þar sem ríkir góður starfsandi og áhersla er á samvinnu, virðingu og jákvætt og hvetjandi starfsumhverfi?
Við leitum eftir 1.-4. árs hjúkrunarnemum til starfa í okkar góða hóp í lærdómsríku starfsumhverfi. Starfshlutfall og vinnufyrirkomulag er samkomulag (20-80%). Tekið er tillit til námsins við skipulag vakta. Ráðið er í störfin frá 1. febrúar 2023 eða eftir nánara samkomulagi.
Lungnadeild er bráðalegudeild með hágæslurýmum og eina sérhæfða lungnadeildin á landinu. Þar fer fram greining og meðferð á sjúklingum með bráða og langvinna lungnasjúkdóma sem og svefnháða öndunartruflun. Þjálfun og fræðsla er í fyrirrúmi á deildinni og mörg námstækifæri. Á deildinni starfa um 70 manns í þverfaglegu teymi. Við leggjum okkur fram við að þjónustan við skjólstæðinga okkar sé til fyrirmyndar, öryggi þeirra sé tryggt og að þeim sé sýnd hlýja og umhyggja. Við tökum vel á móti nýju fólki og lofum góðri aðlögun.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Hlutverk og ábyrgð er í samræmi við starfslýsingar hjúkrunarnema eftir lengd náms
- Þátttaka í teymisvinnu
Hæfniskröfur
- Hjúkrunarnemi á 1.-4. ári
- Jákvætt viðhorf, frumkvæði og samskiptahæfni
- Faglegur metnaður og áhugi á að öðlast færni í hjúkrun sjúklinga með lungnasjúkdóma og annarra sem á deildinni dvelja
- Hæfni og geta til að vinna í teymi
- Íslenskukunnátta áskilin
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum, ef við á. Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarnemi
Starfshlutfall er 20-80%
Umsóknarfrestur er til og með 31.01.2023
Nánari upplýsingar veitir
Guðrún Árný Guðmundsdóttir - [email protected] - 824 6019