Sumarafleysingar fæðingadeild - Hjúkrunarfræðinemar
Sumarafleysingar fæðingadeild - Hjúkrunarfræðinemar
Vegna sumarafleysinga eru lausar til umsóknar 70-80% stöður hjúkrunarfræðinema við fæðingadeild Sjúkrahússins á Akureyri.
Næsti yfirmaður er Ingibjörg Hanna Jónsdóttir forstöðuljósmóðir fæðingadeildar.
Helstu verkefni og ábyrgð
Í starfinu felst ábyrgð á öllum almennum verkefnum hjúkrunarfræðinema samkvæmt lögum og reglugerðum. Einnig að unnið sé samkvæmt markmiðum hjúkrunar, deildarinnar og stofnunarinnar.
Hæfniskröfur
- Æskilegt að umsækjandi hafi lokið tveimur námsárum í hjúkrun
- Starfsreynslu á sjúkrahúsi er kostur
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferil ásamt prófskírteinum og starfsleyfi. Umsóknum skal skilað rafrænt á vef sjúkrahússins www.sak.is Við ráðningar í störf er tekið mið af jafnréttisstefnu sjúkrahússins, sem er reyklaus vinnustaður. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Gildi Sjúkrahússins á Akureyri eru: ÖRYGGI SAMVINNA FRAMSÆKNI. Sjúkrahúsið á Akureyri hefur hlotið alþjóðlega gæðavottun á starfsemi sinni.
Starfshlutfall er 70-80%
Umsóknarfrestur er til og með 31.01.2023
Nánari upplýsingar veitir
Ingibjörg Hanna Jónsdóttir
-
[email protected]
-
463-0100
Erla Björnsdóttir
-
[email protected]
-
463-0100