Sumarafleysingar bráðamóttaka - Móttökuritari
Sumarafleysingar bráðamóttaka - Móttökuritari
Vegna sumarafleysinga eru lausar til umsóknar stöður móttökuritara við bráðamóttöku Sjúkrahússins á Akureyri. Mikilvægt að viðkomandi geti hafið störf í kringum 20. maí nk.
Næsti yfirmaður er Kristín Ragnarsdóttir forstöðuhjúkrunarfræðingur bráðamóttöku.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Móttaka og skráning skjólstæðinga
- Símsvörun og úrlausn símtala
- Bókanir, uppgjör og annað sem til fellur
Hæfniskröfur
Leitað er eftir ábyrgðarfullum og duglegum einstaklingi með góða tölvufærni og tungumálakunnáttu.
Lögð er áhersla á frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og hæfileika í samskiptum og samvinnu.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kjölur hafa gert.
Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferil. Umsóknum skal skilað rafrænt á vef sjúkrahússins www.sak.is.
Við ráðningar í störf er tekið mið af jafnréttisstefnu sjúkrahússins, sem er reyklaus vinnustaður. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Gildi Sjúkrahússins á Akureyri eru: ÖRYGGI SAMVINNA FRAMSÆKNI. Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi. Áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 31.01.2023
Nánari upplýsingar veitir
Kristín Ósk Ragnarsdóttir
-
[email protected]
-
463-0100
Erla Björnsdóttir
-
[email protected]
-
463-0100