Sumarafleysingar gjörgæsludeild - Hjúkrunarfræðingar/hjúkrunarnemar
Sumarafleysingar gjörgæsludeild - Hjúkrunarfræðingar/hjúkrunarnemar
Vegna sumarafleysinga eru lausar til umsóknar stöður hjúkrunarfræðinga/hjúkrunarnema við gjörgæsludeild Sjúkrahússins á Akureyri. Um er að ræða vaktavinnu.
Næsti yfirmaður er Brynja Dröfn Tryggvadóttir, forstöðuhjúkrunarfræðingur gjörgæsludeildar.
Helstu verkefni og ábyrgð
Í starfinu felst ábyrgð á öllum almennum verkefnum hjúkrunarfræðinga samkvæmt lögum og reglugerðum. Einnig að unnið sé samkvæmt markmiðum hjúkrunar, deildarinnar og stofnunarinnar.
Hæfniskröfur
- Hjúkrunarfræðingar skulu hafa fullgilt hjúkrunarpróf og íslenskt starfsleyfi
- Hjúkrunarnemar skulu helst hafa lokið 2 námsárum
- Starfsreynsla í hjúkrun er kostur
- Lögð er áhersla á frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og hæfileika í samskiptum og samvinnu.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferil ásamt prófskírteinum og starfsleyfi. Umsóknum skal skilað rafrænt á vef sjúkrahússins www.sak.is
Við ráðningar í störf er tekið mið af jafnréttisstefnu sjúkrahússins, sem er reyklaus vinnustaður. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Gildi Sjúkrahússins á Akureyri eru: ÖRYGGI SAMVINNA FRAMSÆKNI. Sjúkrahúsið á Akureyri hefur hlotið alþjóðlega gæðavottun á starfsemi sinni.
Starfshlutfall er 70-100%
Umsóknarfrestur er til og með 31.01.2023
Nánari upplýsingar veitir
Brynja Dröfn Tryggvadóttir
-
[email protected]
-
463-0100
Erla Björnsdóttir
-
[email protected]
-
463-0100