Sumarafleysingar sjúkrahúsapótek - Lyfjafræðingur/lyfjafræðinemi
Sumarafleysingar sjúkrahúsapótek - Lyfjafræðingur/lyfjafræðinemi
Vegna sumarafleysinga er laus til umsóknar 50-100% staða lyfjafræðings/lyfjafræðinema við sjúkrahúsapótek Sjúkrahússins á Akureyri. Starfshlutfall er samkomulag.
Næsti yfirmaður er Jóna Valdís Ólafsdóttir, forstöðulyfjafræðingur sjúkrahúsapóteks.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Pöntun lyfja, móttaka og dreifing lyfja á deildir sjúkrahússins
- Blöndun með smitgát, lyf fyrir göngudeildarsjúklinga
- Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
- Lyfjafræðingur með gilt starfsleyfi EÐA staðfesting á námi lyfjafræðinema frá viðeigandi háskóla er skilyrði
- Þekking og reynsla af störfum úr sjúkrahúsapóteki kostur
- Góð íslensku- og tölvukunnátta
- Nákvæm, skipulögð, sjálfstæð og öguð vinnubrögð
- Góð samstarfs- og samskiptahæfni, öflugur liðsmaður og jákvætt viðmót
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt á vef sjúkrahússins www.sak.is. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferil ásamt prófskírteinum og starfsleyfi. Við ráðningar í störf er tekið mið af jafnréttisstefnu sjúkrahússins, sem er reyklaus vinnustaður. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Sjúkrahúsið á Akureyri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Sjúkrahúsið veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi. Áhersla er á virka þátttöku starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.
Gildi Sjúkrahússins á Akureyri eru: ÖRYGGI SAMVINNA FRAMSÆKNI.
Starfshlutfall er 80%
Umsóknarfrestur er til og með 31.01.2023
Nánari upplýsingar veitir
Jóna Valdís Ólafsdóttir
-
[email protected]
-
463-0100
Erla Björnsdóttir
-
[email protected]
-
463-0100