Sumarafleysingar myndgreiningadeild - Geislafræðingar/geislafræðinemar
Sumarafleysingar myndgreiningadeild - Geislafræðingar/geislafræðinemar
Sumarafleysingastöður geislafræðinga á myndgreiningardeild eru lausar til umsóknar.
Næsti yfirmaður er Elvar Örn Birgisson, forstöðugeislafræðingur og gefur nánari upplýsingar í síma 463-0100 og/eða í tölvupósti [email protected]
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almenn störf geislafræðinga.
Hæfniskröfur
- Geislafræðingur skal hafa lokið námi í geislafræði og hafa gilt starfsleyfi
- Geislafræðinemum stendur einnig til boða að sækja um starfið án umræddra krafna
- Lögð er áhersla á frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og hæfileika í samskiptum og samvinnu
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag geislafræðinga hafa gert.
Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferil ásamt prófskírteinum og starfsleyfi. Umsóknum skal skilað rafrænt á vef sjúkrahússins www.sak.is.
Við ráðningar í störf er tekið mið af jafnréttisstefnu sjúkrahússins, sem er reyklaus vinnustaður. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Gildi Sjúkrahússins á Akureyri eru: ÖRYGGI SAMVINNA FRAMSÆKNI.
Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi. Áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 31.01.2023
Nánari upplýsingar veitir
Elvar Örn Birgisson
-
[email protected]
-
843-5923
Erla Björnsdóttir
-
[email protected]
-
463-0100