Ljósmóðir á fæðingadeild
Ljósmóðir á fæðingadeild
Vegna veikinda er laus til umsóknar afleysingarstaða ljósmóður á fæðingadeild Sjúkrahússins á Akureyri. Staðan er laus nú þegar.
Næsti yfirmaður er Ingibjörg Hanna Jónsdóttir, forstöðuljósmóðir.
Helstu verkefni og ábyrgð
Í starfinu felast öll störf ljósmæðra og ábyrgð samkvæmt lögum og reglugerðum. Staðan krefst þess að unnar séu næturvaktir.
Hæfniskröfur
- Fullgilt embættispróf í ljósmóðurfræði og íslenskt starfsleyfi
- Framúrskarandi samskiptahæfni
- Geta til þess að starfa sjálfstætt og vinna vel undir álagi
- Lögð er áhersla á frumkvæði, sveigjanleika, jákvæðni og góða samvinnu
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Ljósmæðrafélag Íslands hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt á vef sjúkrahússins www.sak.is. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferil ásamt prófskírteinum og starfsleyfi. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Við ráðningar í störf er tekið mið af jafnréttisstefnu sjúkrahússins, sem er reyklaus vinnustaður. Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi. Áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.
Gildi Sjúkrahússins á Akureyri eru ÖRYGGI SAMVINNA FRAMSÆKNI.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum.
Starfshlutfall er 70-100%
Umsóknarfrestur er til og með 31.01.2023
Nánari upplýsingar veitir
Ingibjörg Hanna Jónsdóttir
-
[email protected]
-
463-0100
Erla Björnsdóttir
-
[email protected]
-
463-0100