Sérfræðingur í heimilislækningum - Heilsugæslan Sólvangi
Sérfræðingur í heimilislækningum - Heilsugæslan Sólvangi
Laust er til umsóknar starf sérfræðings í heimilislækningum við Heilsugæsluna Sólvangi. Um er að ræða 80-100% ótímabundið starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. apríl nk. eða eftir nánara samkomulagi. Um er að ræða ábyrgðarmikið og krefjandi starf í spennandi starfsumhverfi þar sem áhersla er á nýsköpun og framþróun. Til greina kemur að ráða áhugasaman almennan lækni sem hefur hug á sérnámi í heimilislækningum, fáist ekki sérfræðingur í starfið.
Á heilsugæslustöðinni eru starfandi sérfræðingar í heimilislækningum ásamt sérnámslæknum, sálfræðingum, hjúkrunarfræðingum, ljósmæðrum og riturum. Heilsugæslunni Sólvangi er fyrst og fremst ætlað að veita íbúum Hafnarfjarðar þjónustu en allir eru velkomnir á stöðina.
Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfssvið heimilislæknis er víðtækt og felst m.a. í almennum lækningum, heilsuvernd, vaktþjónustu og kennslu nema. Hann veitir fræðslu og upplýsingar og leiðbeinir skjólstæðingum og aðstandendum. Heimilislæknir er virkur þátttakandi í þróun og uppbyggingu heimilislækninga, sinnir kennslu starfsfólks og nema og tekur þátt í vísinda-, þróunar- og gæðastarfi.
Hæfniskröfur
- Íslenskt lækningaleyfi
- Sérfræðimenntun í heimilislækningum
- Skipulagshæfni, sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð
- Reynsla af kennslu er æskileg
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Reynsla og áhugi til samstarfs við aðrar starfsstéttir og þátttaka í teymisvinnu
- Áreiðanleiki, faglegur metnaður, jákvæðni og sveigjanleiki
- Góð almenn tölvukunnátta
- Íslenskukunnátta skilyrði
- Góð enskukunnátta
- Hreint sakavottorð
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og kynningarbréf þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um læknismenntun, læknisstörf, vísinda- og rannsóknarstörf. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 30.01.2023
Nánari upplýsingar veitir
Berglind Gunnarsdóttir
-
[email protected]
-
513-6200
Heiða Sigríður Davíðsdóttir
-
[email protected]
-
513-6200