Móttökuritari í sumarafleysingar á HSN í N-Þingeyjarsýslu
Móttökuritari í sumarafleysingar á HSN í N-Þingeyjarsýslu
Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) óskar eftir móttökuriturum/heilbrigðisgagnafræðingum í sumarafleysingar á heilsugæslu í N-Þingeyjarsýslu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Móttaka, tímabókun, afgreiðsla og uppgjör
- Símsvörun
- Skjalafrágangur
- Önnur tilfallandi störf
Hæfniskröfur
- Nám í heilbrigðisgagnafræði er kostur
- Æskilegt að hafa reynslu af afgreiðslustörfum og dagsöluuppgjörum
- Reynsla og góð undirstaða í almennri tölvuvinnslu er æskileg
- Íslenskukunnátta og almenn enskukunnátta
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Gott viðmót, þolinmæði og hæfni í mannlegum samskiptum
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kjölur hafa gert.
Öllum umsóknum verður svarað. Áskilinn er réttur til að hafna umsóknum ef einstaklingar uppfylla ekki framangreind skilyrði.
Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.
Gildi HSN eru: Fagmennska, samvinna og virðing.
Starfshlutfall er 80%
Umsóknarfrestur er til og með 06.02.2023
Nánari upplýsingar veitir
Áslaug Halldórsdóttir, Yfirhjúkrunarfræðingur - [email protected] - 432 4800