Hjúkrunarfræðingur í sumarafleysingar á HSN í Mývatnssveit
Hjúkrunarfræðingur í sumarafleysingar á HSN í Mývatnssveit
Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) Mývatni óskar eftir hjúkrunarfræðingi í sumarafleysingar á heilsugæsluna í Reykjahlíð. Um er að ræða 100% starf í 8 vikur.
Helstu verkefni og ábyrgð
Í starfinu felst ábyrgð á öllum almennum verkefnum hjúkrunarfræðinga samkvæmt lögum og reglugerðum. Einnig að unnið sé samkvæmt markmiðum hjúkrunar, deildarinnar og stofnunarinnar.
Hæfniskröfur
- Fullgilt hjúkrunarpróf og íslenkst starfsleyfi
- Góð íslenskukunnátta
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Jákvæðni og sveigjanleiki
- Starfsreynsla í hjúkrun æskileg
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Öllum umsóknum verður svarað. Áskilinn er réttur til að hafna umsóknum ef einstaklingar uppfylla ekki framangreind skilyrði. Með umsókn skal fylgja afrit af prófskírteini, íslensktu hjúkrunarleyfi og náms- og starfsferilsskrá. Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.
Gildi HSN eru: Fagmennska - samvinna - virðing.
Starfshlutfall er -100%
Umsóknarfrestur er til og með 06.02.2023
Nánari upplýsingar veitir
Áslaug Halldórsdóttir, Yfirhjúkrunarfræðingur - [email protected] - 432 4800